Wernerssonum líklega úthýst

Karl Wernersson stækka

Karl Wernersson

Morgunblaðið Eftir Björgvin Guðmundsson og Þórð Snæ Júlíusson

Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra og Árni Mathiesen fjármálaráðherra eru andvígir þeirri hugmynd að núverandi eigendur Milestone eigi rétt á að eignast hlut í félaginu í kjölfar endurskipulagningar sem nú stendur yfir. Þetta er samkvæmt heimildum úr stjórnarráðinu.

Samkvæmt skipulaginu sem unnið er eftir geta bræðurnir Karl og Steingrímur Wernerssynir, aðaleigendur Milestone, eignast 13% í félaginu ef eignir þess tvöfaldast í verði frá því sem þær eru nú verðmetnar á. Þeir fái svo kauprétt á allt að 27% í viðbót.

Glitnir, sem er langstærsti kröfuhafinn í Milestone, hefur samþykkt þetta fyrir sitt leyti. Unnið er að því að fá samþykki annarra kröfuhafa.

Skilanefnd Glitnis stjórnar bankanum í umboði Fjármálaeftirlitsins, sem heyrir undir pólitíska forystu Björgvins G. Sigurðssonar. Því er ljóst að vilji ráðherra hefur úrslitaáhrif á ákvörðun skilanefndar í stórum málum.

 Gagnrýnendur þeirrar leiðar sem verið er að hrinda í framkvæmd, og ráðherrarnir eru andvígir samkvæmt heimildum Morgunblaðsins, benda á að það sé ekki viðunandi að ríkisbankinn Glitnir geri núverandi eigendum félagsins kleift að halda áfram um stjórnartaumanna – hvað þá að þeir eigi möguleika á að endurheimta hluta fyrra eignarhalds síns í félaginu við vissar aðstæður. Á sama tíma þurfi ríkisbankinn Glitnir að afskrifa háar fjárhæðir.

Ennfremur er óttast að með þessari leið sé komin einhvers konar frumgerð að áætlun fyrir önnur illa stödd fjárfestingarfélög sem eigi enn eftir að leysa sín mál gagnvart stærstu lánardrottnum sínum, bönkum í eigu íslenska ríkisins.

Samkvæmt endurskipulagningunni munu lánveitendur breyta 53 prósentum af kröfum sínum aftur í lán en 47 prósent þeirra breytast í rétt til hlutabréfakaupa. Því mun 61 milljarður króna af þeim skuldum sem eru undir breytast í ný lán en 54 milljarðar króna verða tæknilega afskrifaðar. Kröfuhafarnir geta fengið þá upphæð til baka ef vel gengur.

Miðað við verðmat á eignum Milestone eiga núverandi eigendur, bræðurnir Karl og Steingrímur Wernerssynir, ekki neitt í félaginu.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Viðskipti »

Tvær nýjar vélar í flota Icelandair

18:42 Forstjóri Icelandair Group segist sáttur við fjárhagslega niðurstöðu síðasta árs en 4,5 milljarða króna hagnaður varð af rekstrinum. Í ár bætast tvær nýjar flugvélar í flota fyrirtækisins. „Icelandair verður með umsvifamestu flugáætlun sína frá upphafi í ár,“ segir forstjórinn. Meira »
Frá Borgarnesi.

Selja hlutinn á 75 milljónir

18:27 Byggðaráð Borgarbyggðar samþykkti í dag að taka tilboði Reykjavíkurborgar í hluta af eignarhlut í Faxaflóahöfnum. Tilboðið í hlutinn hljóðar upp á 75 milljónir króna. Meira »

Misnotaði markaðsráðandi stöðu

17:03 Með dómi Hæstaréttar í dag er staðfest sú niðurstaða að Icelandair hafi misnotað markaðsráðandi stöðu á flugleiðinni milli Keflavíkur og Kaupmannahafnar. Meira »

Í mál við Ryanair vegna eldgoss á Íslandi

Farþegar Ryanair sofa á flugvelli í Skotlandi í kjölfar öskuskýsins frá Íslandi í maí 2010.
14:51 Ryanair segist ekki bera ábyrgð á kostnaði flugfarþega sem til féll er flugumferðarsvæðinu var lokað árið 2010 vegna eldgosa á Íslandi. Málið er flutt fyrir Evrópudómstólnum í dag. Meira »

Óbreyttir vextir á evrusvæðinu

Seðlabanki Evrópu í Frankfurt
12:49 Peningastefnunefnd Seðlabanka Evrópu ákvað á fundi sínum í dag að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum í 1%.   Meira »

Óbreyttir stýrivextir í Bretlandi

Englandsbanki
12:34 Stýrivextir Englandsbanka verða áfram 0,50% en peningastefnunefnd bankans kynnti stýrivaxtaákvörðun sína í hádeginu.  Meira »

Sekt fyrir netsmelli

16:33 Hæstiréttur hefur dæmt Icelandair til að greiða 80 milljónir króna í stjórnvaldssekt fyrir að misnota markaðsráðandi stöðu sína með því að bjóða svonefnda Netsmelli árið 2004 milli Keflavíkur og Kaupmannahafnar. Meira »

Hagnaðurinn tvöfaldaðist

Hollenski bankinn ING
13:11 Hagnaður hollenska bankans ING tvöfaldaðist á milli ára og nam árið 2011 5,77 milljörðum evra, 938 milljörðum króna.  Meira »

Pepsi ætlar að segja 8.700 upp

Pepsi hefur boðað uppsagnir hjá fyrirtækinu
12:44 Bandaríski gosdrykkjaframleiðandinn Pepsi ætlar að fækka starfsmönnum um 8.700 en það svarar til 3% starfsmanna.   Meira »

Hagnaður Össurar 4,5 milljarðar

Jón Sigurðsson forstjóri Össuarar
11:49 Hagnaður Össurar nam 36,63 milljónum Bandaríkjadala, 4,5 milljörðum króna, á síðasta ári samanborið við 35,4 milljónir dala árið 2010. Meira »

Danske Bank boðar uppsagnir

Danske Bank.
10:24 Danski bankinn Danske Bank ætlar að fækka störfum um tvö þúsund á næstu þremur árum en alls starfa 21.320 manns hjá bankanum. Meira »

Útlit fyrir minni eftirspurn

12:33 OPEC, samtök olíuútflutningsríkja, telja að eftirspurn eftir hráolíu eigi eftir að vera minni í ár en áður var talið.   Meira »

Allir græða á flugframboði Easy Jet

Þotur EasyJet hefja komur sínar til Íslands í lok mars. .
10:30 Í gær tilkynnti Easy Jet að það myndi á næsta ári byrja að fljúga frá Íslandi til London allan ársins hring.   Meira »

59% samdráttur hjá Rio Tinto

Rio Tinto Alcan hefur þurft að afskrifa háar fjárhæðir vegna yfirtökunnar á Alcan
09:52 Hagnaður ál- og námafyrirtækisins Rio Tinto, sem á og rekur álverið í Straumsvík, dróst saman um 59% á síðasta ári og nam 5,8 milljörðum Bandaríkjadala, 710 milljörðum króna. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir