Skattaskjól skoðuð

stækka

mbl.is/Golli

Morgunblaðið Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is
Steingrímur J. Sigfússon fjármála-, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kynnir í dag ríkisstjórn Íslands aðgerðir sem ætlað er að styrkja heimildir skattyfirvalda á Íslandi til að afla upplýsinga um eignir Íslendinga í svokölluðum skattaskjólum.

Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er áhersla lögð á að skattyfirvöld eigi auðveldara með að rekja nákvæmlega umsvif íslenskra félaga sem skráð eru í skattaskjólum. Meðal þekktra skattaskjóla sem eignir Íslendinga hafa tengst eru eyjan Tortola sem er hluti af Bresku Jómfrúaeyjum, Ermarsundseyjarnar Guernsey og Mön, Kýpur og Cayman-eyjar. Hundruð íslenskra eignarhaldsfélaga eru skráð á þessum stöðum.

Fram hefur komið í Morgunblaðinu á undanförnum vikum að bein peningaleg eign íslenskra félaga á fyrrnefndum stöðum fimmtíufaldaðist frá 2002 til 2007. Fór úr 945 milljónum árið 2002 í 43,7 milljarða króna í lok árs 2007. Inni í þeirri tölu er ekki óbein peningaleg eign Íslendinga, sem getur til dæmis átt uppruna sinn í Lúxemborg og Hollandi.

Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri sagðist ekki geta tjáð sig sérstaklega um þær aðgerðir sem stjórnvöld ætluðu að grípa til. Hann væri bundinn trúnaði þangað til þær væru orðnar opinberar og til umræðu opinberlega.

Stjórnvöld víða erlendis, meðal annars í Bretlandi og Bandaríkjunum, hafa lagt á það áherslu að undanförnu að fá fram allar upplýsingar um félög í þekktum skattaskjólum. Stærsti banki Sviss, UBS, hefur meðal annars fallist á að greiða bandarískum yfirvöldum 780 milljónir dollara í stjórnvaldssekt, um 89 milljarða króna, gegn því að fallið verði frá formlegri ákæru vegna aðstoðar bankans við bandaríska viðskiptavini sína við komast undan að borga skatt í Bandaríkjunum. Ekki hefur þó enn náðst samkomulag um að bandarísk stjórnvöld fái upplýsingar um samtals 52 þúsund viðskiptavini sem eiga um 20 milljarða dollara á leynireikningum, yfir 2.000 milljarða króna.

Skúli Eggert segir fjögur atriði helst koma til greina sem yfirvöld hér á landi sem og víða annars staðar vilji skoða nánar varðandi skattaskjólin. Það er í fyrsta lagi hvort verið sé að svíkja undan skatti. Í öðru lagi hvort verið sé að fela eignarhald til að forðast viðurlög samkvæmt samkeppnislögum. Í þriðja lagi hvort verið sé að leyna eignarhaldi til að komast hjá yfirtökuskyldu, og svo í fjórða lagi hvort samskipti minni- og meirihluta séu eðlileg og á grunni réttra upplýsinga. „Það er því ekki svo að upplýsingar um félögin í skattaskjólunum tengist aðeins rannsóknum á skattalegum þáttum í rekstri. Heldur ekki síður því hvort farið sé að almennum leikreglum á markaði,“ segir Skúli Eggert.
Steingrímur J. Sigfússon

Steingrímur J. Sigfússon Ómar Óskarsson

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Í Flatey á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu er rekið stærsta kúabú landsins. Búið var auglýst til ...

Tekur þrjú ár að selja 45 jarðir

18:27 Landsbankinn reiknar með að það taki um þrjú ár að ljúka sölu á öllum jörðum í eigu jarðafélagsins Lífsvals, en félagið á um 45 jarðir. Bankinn hefur auglýst 20 þeirra til sölu um helgina, m.a. stærsta kúabú landsins. Meira »
Verslun Moss Bros í Oxford Street.

29% hlutur í Moss Bros seldur

16:19 Tæplega þriðjugur hlutafjár í karlmannafataversluninni Moss Bros hefur skipt um hendur, en fyrirtækið var um tíma í eigu Baugs. Meira »

Býr sig undir hugsanlegt hrun evrunnar

15:50 Englandsbanki hefur hafið undirbúning fyrir það ef til þess kemur að evrusvæðið liðist í sundur að meira eða minna leyti. Meðal þeirra ráða sem bankinn hyggst grípa til ef á þarf að halda er að lækka vexti og frekari magnslökun. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Væntingar vaxa lítillega í maí

Væntingar aukast með hækkandi sól.
11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maímánuði, en væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægra orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Innsýn í reksturinn

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
í gær Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ferðamennska til fjár
Fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði erlendum ferðamönnum sem hingað koma um 20% sé miðað við síðasta ár. Það er staðfesting á þeim gríðarlega vexti Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir