„Ótrúlega lítil lækkun"

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Árni Sæberg

Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir stýrivaxtalækkun Seðlabanka Íslands um 1 prósentustig vera ótrúlega litla lækkun. „Þetta er miklu minni lækkun heldur en eðlilegt var að reikna með" segir Vilhjálmur.

Í ljósi þeirra forsendna sem fyrir liggja þá komi svo lítil lækkun verulega á óvart. „Það er engin verðbólga í gangi í hagkerfinu. Það er engin  eftirspurnarþrýstingur. Það er mikið atvinnuleysi og fer vaxandi. Staða fyrirtækja og atvinnulífsins er ekki með þeim hætti að einhver rekstur standi undir þessu vaxtastigi," segir Vilhjálmur.

Hann segir að með þessum vöxtum, 17%, sé verið að reka flóttann inn á atvinnuleysisbætur. 

Að sögn Vilhjálms telja Samtök atvinnulífsins eðlilegt að stýrivextir hefðu verið lækkaðir í 10% og síðan færu þeir hratt lækkandi áfram. Þannig að vaxtamunurinn á milli Íslands og evrusvæðisins yrði kominn undir 3% á mjög stuttum tíma. 

Hann segir að SA hafi ítrekað rætt við stjórnvöld um þessi mál og haldið verði áfram að krefjast lækkunar stýrivaxta. Hins vegar hafi ekki verið hlustað á þau sjónarmið hingað til.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK