Fimmtán sóttu um stöðu seðlabankastjóra

Seðlabanki Íslands
Seðlabanki Íslands Reuters

Fimmtán sóttu um stöðu seðlabankastjóra og sextán um stöðu aðstoðarseðlabankastjóra en umsóknarfrestur um stöðurnar rann út þann 31. mars sl. Átta uppfylla skilyrði nýrra laga um seðlabankann hvað varðar lágmarksmenntun. Már Guðmundsson, Arnór Sighvatsson og Þorvaldur Gylfason eru meðal umsækjenda um stöðu seðlabankastjóra.

Sérstök matsnefnd verður skipuð til að meta hæfni umsækjenda um stöðurnar í samræmi við ákvæði laganna. Ráðgert er að skipað verði í stöðurnar í maí nk.

Umsækjendur um embætti seðlabankastjóra sem uppfylla lágmarksmenntunarskilyrði laganna um háskólapróf eru eftirfarandi:
1.    Arnór Sighvatsson, hagfræðingur.
2.    Ásgeir Jónsson, hagfræðingur.
3.    Jóhann Rúnar Björgvinsson, hagfræðingur.
4.    Már Guðmundsson, hagfræðingur.
5.    Rannveig Sigurðardóttir, hagfræðingur.
6.    Tryggvi Pálsson, hagfræðingur.
7.    Yngvi Örn Kristinsson, hagfræðingur.
8.    Þorvaldur Gylfason, hagfræðingur.

Umsækjendur um embætti aðstoðarseðlabankastjóra eru eftirfarandi:
1.    Arnór Sighvatsson, hagfræðingur.
2.    Baldur Pétursson, viðskiptafræðingur.
3.    Daníel Svavarsson, hagfræðingur.
4.    Halldór Eiríkur S. Jónhildarson, þjóðréttar- og lögfræðingur.
5.    Haukur Camillus Benediktsson, hagfræðingur.
6.    Jóhann Rúnar Björgvinsson, hagfræðingur.
7.    Jón G. Jónsson, viðskiptafræðingur.
8.    Jón Þ. Sigurgeirsson, viðskiptafræðingur.
9.    Lilja D. Alfreðsdóttir, hagfræðingur.
10.    Lúðvík Elíasson, hagfræðingur.
11.    Ólafur Þórisson, hagfræðingur.
12.    Rannveig Sigurðardóttir, hagfræðingur.
13.    Tamara Lísa Roesel, viðskiptafræðingur
14.    Tryggvi Pálsson, hagfræðingur
15.    Yngvi Örn Kristinsson, hagfræðingur.
16.    Þorsteinn Þorgeirsson, hagfræðingur.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK