FME veitir aukinn frest

mbl.is/Haraldur

Fjármálaeftirlitið, FME, hefur ákveðið að taka upp fyrri ákvarðanir sínar, um ráðstafanir eigna og skulda gömlu bankanna til nýju bankanna, að því marki sem þær snúa að tímafresti til að ljúka frágangi á skilmálum fjármálagerningsins, að því er segir á vef FME.

Átt er við skilmála fjármálagerningsins sem nýju bankarnir gefa út til gömlu bankanna til greiðslu endurgjaldsins. FME telur þörf á frekari tímafresti þar sem endanleg tímaáætlun liggur ekki fyrir milli hlutaðeigandi aðila um frágang á skilmálum.

FME telur ekki óeðlilegt að vandlega sé farið yfir skilmála fjármálagerningsins enda mikilvægt að vel takist til. Ekki liggur þó fyrir hversu langur umræddur frestur þarf að vera en ákvörðun um það verður tekin eigi síðar en 15. júní næstkomandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK