Afgangur af vöruskiptum

Sjávarafurðir eru nú 43,6% alls útflutnings.
Sjávarafurðir eru nú 43,6% alls útflutnings.

Hagstofan hefur birt endanlegar tölur um vöruskipti í apríl og eru þær samhljóða bráðabirgðatölum, sem birtar voru í byrjun maí. Fluttar voru út vörur fyrir 31,7 milljarða króna og inn fyrir 29,4 milljarða. Vöruskiptin í apríl, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 2,3 milljarða króna.

Í apríl 2008 voru vöruskiptin óhagstæð um 0,9 milljarða króna á sama gengi.

Fyrstu fjóra mánuðina 2009 voru fluttar út vörur fyrir 132,4 milljarða króna en inn fyrir 115,5 milljarða króna. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 16,9 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 37,8 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 54,7 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður. 

Fyrstu fjóra mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruútflutnings 43,2 milljörðum eða 24,6% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 43,6% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 20,2% minna en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 48,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 20,8% minna en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls, en einnig var samdráttur í útflutningi á sjávarafurðum.

Fyrstu fjóra mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruinnflutnings 97,9 milljörðum eða 45,9% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Samdráttur varð í verðmæti nær allra liða innflutnings, mest í fjárfestingavöru, hrá- og rekstrarvöru og flutningatækjum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK