Kínverjar kaupa Hummer

Hummer á bílasölu í Arizona.
Hummer á bílasölu í Arizona. Reuters

Bandaríski bílaframleiðandinn General Motors hefur náð samkomulagi við kínverska iðnfyrirtækið Sichuan Tengzhong um sölu á vörumerkinu Hummer. Í sameiginlegri yfirlýsingu frá fyrirtækjunum kemur fram að  Tengzhong kaupi réttinn til að framleiða Hummer-bíla og yfirtaka sölusamninga. 

Ekki er búið að ganga endanlega frá samningum. Gert er ráð fyrir að framkvæmdastjórn og aðrir starfsmenn sem tengjast framleiðslu á Hummerbílum starfi áfram. Segir GM að með þessu hafi um 3000 störf verið tryggð. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK