Viðskipti
| Morgunblaðið
| 5.6.2009
| 6:50
| Uppfært
9:10
Astraeus líka fært undan Fons
Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is
Breska flugfélagið Astraeus, sem meðal annars leigir Iceland Express flugvélar, var fært undan Fons til félaga tengdra Pálma Haraldssyni áður en Fons var sett í gjaldþrot. Heimildir Morgunblaðsins herma að lágmarksverð hafi verið greitt fyrir. Pálmi var aðaleigandi Fons áður en félagið fór í þrot.
Færði líka Iceland Express
Í vikunni var sagt frá því að hlutafjáraukning í Iceland Express, sem einnig var í eigu Fons, hinn 24. nóvember 2008 væri til skoðunar hjá skiptastjóra í þrotabúi félagsins. Þá var hlutafé aukið um 300 milljónir króna að nafnvirði. Fengur, annað félag í eigu Pálma, skráði sig fyrir öllu hlutafénu og eignaðist við það um 92 prósent hlut í flugfélaginu. Nokkrum vikum síðar var Fons lýst gjaldþrota.Landsbankinn, sem átti veð í hlut Fons í Iceland Express, vissi ekki af hlutafjáraukningunni fyrr en hún var yfirstaðin, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins. Bankinn heldur nú á þeim tæpu átta prósentum í Iceland Express sem ekki eru í eigu Fengs.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















