Litlar væntingar neytenda

Heiðar Kristjánsson

Væntingar neytenda til efnahags- og atvinnulífsins hækkuðu aðeins á milli júní og júlí síðastliðins. Breytingin er óveruleg og svartsýnin enn allsráðandi hjá íslenskum neytendum. Væntingavísitala Capacent Gallup sem birt var í morgun stóð í 24,9 stigum í júlí og hækkaði um 4 stig frá fyrri mánuði.

Vísitalan hefur verið að meðaltali 27 stig frá því í nóvember í fyrra eða frá hruni bankanna, og er mælingin í júlí því aðeins undir meðaltalinu þennan tíma. Íslenskir neytendur hafa verið afar svartsýnir á efnahags- og atvinnuástandið allan tíma frá hruni bankanna, að því er segir í Morgunkorni Íslandsbanka.

Undanfarna 17 mánuði eða allt frá mars á síðasta ári hefur gildi vístölunnar verið undir 100 stigum sem  þýðir að fleiri svarendur eru neikvæðir en jákvæðir. Mesta bjartsýni sem mælst hefur á þennan mælikvarða meðal neytenda hér á landi mældist í maí  2007 þegar vísitalan var 155 stig.

„Þá fór lítið fyrir svartsýni meðal neytenda. Nú er hinsvegar allt önnur staða uppi í efnahagsmálum þjóðarinnar, kaupmáttur lækkandi, atvinnuleysi mikið, verðbólgan há, húsnæðisverð lækkandi og skattahækkanir framundan.

Það kemur því varla á óvart að nú skuli 89% aðspurðra hafa sagt núverandi efnahagsástand vera slæmt á meðan aðeins 0,4% aðspurðra sögðu það gott. Þá töldu 58% aðspurðra að efnahagsástandið yrði verra eftir 6 mánuði og einungis 13% að það yrði betra," samkvæmt Morgunkorni.

Segir til um þróun einkaneyslunnar

Talsverð fylgni er á milli Væntingavísitölunnar og einkaneyslu, samkvæmt Greiningu Íslandsbanka. Þannig segir vísitalan ágætlega til um þær breytingar sem eru að eiga sér stað í neysluútgjöldum heimilanna, en einkaneysla er stærsti einstaki liður landsframleiðslunnar.

Einkaneyslan hefur dregist hratt saman undanfarið og mældist samdrátturinn á milli fyrsta ársfjórðungs í ár og sama tíma í fyrra 22,1%, og 23,8% ef fjórði fjórðungur í fyrra er skoðaður.

Tölur um þróun einkaneyslunnar á öðrum ársfjórðungi í ár hafa enn ekki verið birtar.

„Væntingavísitalan, ásamt öðrum hagvísum sem segja til um þróun einkaneyslunnar, benda hins vegar til þess að einkaneyslan hafi dregist áfram umtalsvert saman á öðrum fjórðungi þessa árs og að hún muni líklegast gera það einnig á þriðja ársfjórðungi."

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK