Toyota samþykkir ekki Landsbanka sem eiganda

Reuters

Áhugi var fyrir því innan skilanefndar Landsbankans að taka yfir Toyota á Íslandi, vegna skuldar félagsins Smáeyjar sem er í eigu Magnúsar Kristinssonar.

Stjórnendur í höfuðstöðvum Toyota í Evrópu töldu að banki væri ekki hæfur innflutningsaðili fyrir Toyota-bifreiðarnar og því var hugsanleg yfirtaka andvana fædd, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins. Toyota á Íslandi verður því rekið áfram a.m.k. um sinn undir óbreyttu eignarhaldi.

Á sömu forsendu getur Nýi Landsbankinn ekki tekið yfir reksturinn, en bankinn er með veð í rekstrartækjum og vörubirgðum Toyota á Íslandi vegna lánveitinga til félagsins, samkvæmt heimildum Morgunblaðsins.

Toyota gerir samninga við innflutningsaðila í þeim löndum þar sem fyrirtækið flytur ekki sjálft inn bíla, eins og t.d. á Íslandi. Toyota í Evrópu setur ekki nein fyrirfram gefin skilyrði sem fyrirtæki þurfa að uppfylla til að fá sérstakan sérleyfissamning heldur er það metið í hvert og eitt skipti, samkvæmt upplýsingum frá Toyota á Íslandi. Höfuðstöðvar Toyota eru í þeirri aðstöðu að geta afturkallað leyfi til innflutnings á bifreiðunum hér á landi.

Skilanefnd Landsbankans hafði í hyggju að ganga að veðum í Toyota vegna lánveitinga til Smáeyjar ehf., fjárfestingarfélags Magnúsar, en Smáey keypti allt hlutafé í P. Samúelssyni, sem átti Toyota á Íslandi, árið 2005 og voru kaupin m.a. fjármögnuð með láni frá Landsbankanum.

Toyota á Íslandi er eitt margra félaga sem skilanefndin hefur veð í vegna skulda félaga í eigu Magnúsar, en í svipaðri stöðu er Domino's Pizza á Íslandi, sem er einnig undir óbeinum yfirráðum skilanefndar Landsbankans. Að sögn Páls Benediktssonar, talsmanns skilanefndar Landsbankans, hafa engar skuldir félaga í eigu Magnúsar verið afskrifaðar. Skilanefndin á sem stendur í viðræðum við Magnús vegna skulda sem eru á fimmta tug milljarða króna. Samkvæmt upplýsingum blaðsins hefur ekki verið gengið að neinum veðum vegna skuldanna.

Skilanefndin hefur tvo valkosti til að verja hagsmuni sína vegna lánveitinganna, þ.e. að leyfa Magnúsi að reka félögin áfram gegn niðurfellingu hluta skuldanna eða taka félögin yfir. Sama hvor leiðin verður farin mun skilanefndin þurfa að afskrifa einhvern hluta skuldanna þar sem lán til félaga í eigu Magnúsar voru mörg hver veitt þegar verðbólan í íslensku efnahagslífi var sem stærst.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK