Viðskipti
| Morgunblaðið
| 12.9.2009
| 8:34
Fjárfestar áhugasamir um verslanir Nóatúns
Aðilar höfðu samband við Kaupás og lýstu yfir áhuga á að kaupa verslanir Nóatúns. Fengu þeir gögn um verslanirnar en ekkert varð af fyrirhugaðri sölu. Nóatún er ekki í formlegu söluferli, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins.
Nóatún á sér langa sögu sem nær allt aftur til 1960, þegar Jón Júlíusson, stofnandi Nóatúns, keypti verslunina Þrótt í Samtúni. Jón Helgi Guðmundsson, oft kenndur við Byko, keypti Kaupás árið 2003 og eignaðist þá allar verslanir Nóatúns.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















