Endurfjármögnun Haga lokið

Merki Haga
Merki Haga

Hagar hf. hafa lokið endurfjármögnun félagsins í samstarfi við Nýja Landsbankann (NBI) og Nýja Kaupþing banka.  Hagar hafa nú greitt að fullu skuldabréfaflokk félagsins, sem var á gjalddaga 19. október 2009, upphaflega að fjárhæð 7 milljarðar króna. 
 
Hagar eru eina fyrirtækið sem hefur greitt upp að fullu skuldabréfaflokk, sem skráður var í Kauphöll Íslands, eftir hrun íslenska bankakerfisins síðastliðið haust, að því er segir í tilkynningu frá Högum.

Ekki er um að ræða endurfjármögnun móðurfélags Haga, 1998 ehf., en það félag skuldar Nýja Kaupþingi um þrjátíu milljarða króna vegna kaupa á Högum frá Baugi Group í júlí 2008. 1998 ehf. á 95,7 prósent hlut í Högum en félagið er dótturfélag Gaums sem er í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu, að því er fram kom í frétt Morgunblaðsins þann 9. október sl.

Þar kom fram að Hagar, móðurfélag Hagkaupa, Bónuss, 10-11 o.fl. verslana, hafi undirritað drög að samkomulagi við bankana tvo um endurfjármögnun félagsins með fyrirvara um áreiðanleikakönnun og samþykki lánanefnda bankanna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK