Kaupmáttur nú sá sami og 2002

Kaupmáttur launa hefur rýrnað um 12,6% frá því að hann var mestur í janúar árið 2008. Þessi mikla kaupmáttarrýrnun hefur því leitt til þess að kaupmáttur er kominn aftur til ársins 2002. 

Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka. Á síðustu tólf mánuðum hefur kaupmáttur lækkað um 3,6% en bankinn segir að gera megi ráð fyrir að kaupmáttur ráðstöfunartekna heimilanna hafi rýrnað enn frekar, þá m.a. sökum þess að atvinnuleysi hafi  aukist mikið undanfarið og skattar hafa hækkað.  

Íslandsbanki segir, að sú kaupmáttarskerðing, sem íslenskir launþegar hafi orðið fyrir undanfarin misseri, eigi sér fá fordæmi hér á landi og þurfi að fara aftur til byrjun tíunda áratugar síðustu aldar til þess að finna álíka þróun. Jafnframt hafi kaupmáttur launa ekki rýrnað jafn mikið á einu ári og 2009 í a.m.k. tvo áratugi, eða eins langt og tölur Hagstofunnar ná.

Segir bankinn, að ekki sé hægt að reikna með því að kaupmáttur taki að aukast á ný fyrr en í fyrsta lagi undir lok ársins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK