Skuldatryggingarálag lækkar

Fjármálaráðuneytið.
Fjármálaráðuneytið. Reuters

Skuldatryggingarálag á ríkissjóð Íslands hefur lækkað nokkuð síðustu daga. Fram kemur í Morgunkorni Íslandsbanka að í morgun var álagið til 5 ára 615 punktar (6,15%), en það var 675 punktar í byrjun síðustu viku.

Íslandsbanki segir, að þessi lækkun áhættuálagsins á íslenska ríkið sé þó ekkert einsdæmi. Þannig hafi skuldatryggingarálag annarra landa, sem glíma við mikinn halla á opinberum fjármálum verið að lækka. Í morgun var 5 ára skuldatryggingarálag Grikklands 339 punktar sem er töluvert lægra en það var í síðustu viku, en þá fór það upp í 428 punkta.

Segir í Morgunkorni, að telja megi líklegt að lækkun áhættuálagsins á Grikkland endurspegli væntingar markaðsaðila um að Evrópusambandið komi til með að aðstoða Grikkland í fjárhagserfiðleikum þess. Þetta geti svo aftur haft áhrif í þá átt að áhættufælni markaðsaðila minnki almennt og því lækki áhættuálag á mörkuðum.

Þrátt fyrir lækkunina síðustu daga er skuldatryggingaálagið á íslenska ríkið enn hátt og 200 punktum hærra en það var í upphafi þessa árs.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK