106 fyrirtæki gjaldþrota í mars

Í mars 2010 voru skráð 164 ný einkahlutafélög samanborið við 231 einkahlutafélög í mars 2009, sem jafngildir rúmlega 29% fækkun milli ára þá voru 106 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 100 fyrirtæki í mars 2009, sem jafngildir 6% fjölgun milli ára samkvæmt skráningu Hagstofunnar.

Einnig voru skráð 45 samlagsfélög í mars. Heildarfjöldi nýskráðra einkahlutafélaga er því 469 fyrstu þrjá mánuði ársins og hefur nýskráningum fækkað um tæplega 32% frá sama tímabili árið 2009 þegar 690 ný einkahlutafélög voru skráð.

Eftir bálkum atvinnugreina voru flest einkahlutafélög skráð í heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum en flest samlagsfélög voru skráð í sérfræðileg, vísindaleg og tæknileg starfsemi.

Eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot í heild- og smásöluverslun, viðgerðir á vélknúnum ökutækjum og í bálknum byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð.

Fyrstu þrjá mánuði ársins 2010 er fjöldi gjaldþrota 292 sem er tæplega 12% aukning frá sama tímabili árið 2009 þegar 261 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK