Ríkið kaupir skuldabréf í Lúx

Landsbankinn í Lúxemborg.
Landsbankinn í Lúxemborg. mbl.is/Ólafur

Seðlabanki Íslands hefur gert samkomulag við Seðlabankann í Lúxemborg  og skiptastjóra Landsbankans í Lúxemborg um kaup á 98% útistandandi skuldabréfa Avens B.V. Skuldabréfin voru í eigu Landsbankans í Lúxemborg en veðsett BCL í tengslum við lausafjárfyrirgreiðslu á árinu 2008.

Landsbankinn í Lúxemborg  er dótturfélag Landsbanka Íslands hf.

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, segir í tilkynningu að samkomulagið sé veigamikill áfangi í uppgjöri vegna falls íslensku bankanna. Það muni lækka erlenda skuldastöðu þjóðarbúsins um rúmlega 3,5% af landsframleiðslu og krónueign erlendra aðila um því sem næst fjórðung eða um 8% af vergri landsframleiðslu. Þá sé samkomulagið mikilvæg forsenda þess að hægt sé að stíga næstu skref í afnámi hafta á gjaldeyrisviðskiptum hér á landi.

Samkvæmt samkomulaginu mun Seðlabanki Íslands fá full yfirráð yfir eignum Avens B.V. sem er stærsti einstaki eigandi krónueigna utan Íslands, en krónueignir þess nema um 120 milljörðum króna eða um fjórðungi allra krónueigna erlendra aðila. Röskur þriðjungur þeirra eru innstæður í bönkum en tveir þriðju hlutar eru skuldabréf gefin út af ríkissjóði eða með ábyrgð hans.

Stóran hluta kaupverðsins greiðir Seðlabanki Íslands með 402 milljóna evra skuldabréfi útgefnu af ríkissjóði til 15 ára. Bréfið er afborgunarbréf og ber breytilega vexti sem miðast við millibankavexti að viðbættu álagi með líkum kjörum og Norðurlönd hafa boðið Íslandi, að sögn Seðlabankans.

Engin ákvörðun hefur verið tekin um ráðstöfun eigna Avens B.V. Umsjón þeirra verður á hendi ESÍ ehf. (Eignasafn Seðlabanka Íslands) eins og umsjón annarra eigna og krafna sem fallið hafa í skaut ríkissjóðs og Seðlabanka Íslands vegna bankahrunsins. 

Stefán Jóhann Jóhannsson, Freyr Hermannsson og Arnór Sighvatsson á fundi …
Stefán Jóhann Jóhannsson, Freyr Hermannsson og Arnór Sighvatsson á fundi með blaðamönnum í morgun mbl.is/Eggert
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK