Áfram afgangur af vöruskiptum

Sjávarafurðir eru stór hluti af útflutningsverðmæti Íslendinga.
Sjávarafurðir eru stór hluti af útflutningsverðmæti Íslendinga.

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir júlí var vöruútflutningur 43,9 milljarðar króna og innflutningur 39,4 milljarðar króna. Vöruskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 4,5 milljarða króna, að því er kemur fram í nýjum Hagvísum Hagstofunnar.

Í júlí í fyrra var vöruskiptajöfnuður  hagstæður um 0,5 milljarða.

Það sem af er árinu eru vöruskiptin hagstæð um nærri 68,5 milljarða króna. Á sama tímabili í fyrra voru vöruskiptin hagstæð um nærri 40 milljarða króna, samkvæmt tölum Hagstofunnar.

Hagstæð vöruskipti hafa nú í hverjum mánuði samfellt frá því í janúar  árið 2009.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK