Litlar breytingar í fasteignasölu vestanhafs

Lítil fasteignasala er í Bandaríkjunum þessa mánuðina
Lítil fasteignasala er í Bandaríkjunum þessa mánuðina Reuters

Alls voru seldar 288 þúsund nýjar fasteignir í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Er það svipaður fjöldi og mánuðinn á undan en 29% minni sala heldur en fyrir ári síðan. Um er að ræða sölu á íbúðarhúsnæði og hefur hún einungis einu sinni verið minni.

Segja sérfræðingar að þetta eigi ekki að koma neinum á óvart enda hafi fasteignasala verið mjög lítil í allt sumar í Bandaríkjunum.

Meðalverð fasteignar er 248.800 Bandaríkjadalir,  28,7 milljónir króna.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK