Fjölda starfa stefnt í hættu

Félag atvinnurekenda gagnrýnir frumvarp fjármálaráðherra um heimildir opinberra stofnanna til …
Félag atvinnurekenda gagnrýnir frumvarp fjármálaráðherra um heimildir opinberra stofnanna til að bjóða út innkaup erlendis.

Félag atvinnurekenda, FA, gerir alvarlegar athugasemdir við frumvarp fjármálaráðherra um að heimila útboð á innkaupum fyrir ríkisvaldið í öðrum EES-ríkjum.

Í frumvarpinu felst heimild til að fela miðlægri innkaupastofnun að bjóða út innkaup í öðru EES-ríki, hvort sem er í samstarfi við erlenda kaupendur eða ekki.

Markmiðið er meðal annars að auka stærðarhagkvæmni í innkaupum, til dæmis með því að ganga inn í útboð opinberra stofnana á Norðurlöndum.

Almar Guðmundsson, framkvæmdastjóri FA, segir í viðskiptablaði Morgunblaðsins í dag, að með þessu sé þúsundum starfa stefnt í hættu og að alls ekki sé gefið að nokkur sparnaður náist með því að haga innkaupum hins opinbera með þessum hætti.


Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK