Hagnaður sjávarútvegs eykst

Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja fyrir afskriftir, fjármagnskostnað og tekjuskatt sem hlutfall af heildartekjum sjávarútvegsins jókst milli áranna 2008 og 2009. Í fiskveiðum og vinnslu hækkaði þetta hlutfall úr 27,4% í 31%, í fiskveiðum úr 25% árið 2008 í 26,3% af tekjum árið 2009 og í fiskvinnslu úr 17% í tæplega 21%.

Hreinn hagnaður í sjávarútvegi árið 2008 nam 22% samanborið við 19,1% hagnað árið áður. Hagnaður var áfram á rekstri mjölvinnslu og á rekstri loðnuskipa á árinu 2009, að því er kemur fram í nýju riti Hagstofunnar.

Heildareignir sjávarútvegs í árslok 2009 voru 590 milljarðar króna, heildarskuldir 564 milljarður og eigið fé jákvætt um tæpa 27 milljarða.

Rit Hagstofunnar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK