Laun bankastjóra Arion banka 46 milljónir

Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka. stækka

Höskuldur Ólafsson, bankastjóri Arion banka. mbl.is/Eggert

Þeir tveir menn, sem gegndu embætti bankastjóra Arion banka á síðasta ári fengu samtals 45,9 milljónir króna í laun. Finnur Sveinbjörnsson, sem var bankastjóri til loka maí, fékk 15,9 milljónir en Höskuldur H. Ólafsson, sem tók við 1. júní, fékk 30 milljónir eða að jafnaði 4,3 milljónir króna á mánuði.

Árið 2009 fékk Finnur greidda 21 milljón króna í laun fyrir forstjórastarfið, að því er kemur fram í ársreikningi bankans.

Fimm framkvæmdastjórar fengu 109,9 milljónir króna í laun á síðasta ári eða um 22 milljónir króna hver að jafnaði.

Monica Caneman, formaður bankaráðs Arion banka fékk 6,6 milljónir króna í laun á síðasta ári, Guðrún Johnsen, sem situr í bankaráðinu, fékk 5 milljónir króna, en aðrir bankaráðsmenn fengi á bilinu frá 400 þúsund til 3,3 milljóna í laun.

Ársreikningur Arion banka

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Fulltrúar fyrirtækja sem mældust hæst í Íslensku ánægjuvoginni.

Viðskiptavinir Nova ánægðastir

15:49 Viðskiptavinir Nova eru ánægðastir samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni 2011. Fékk fyrirtækið 73,3 stig af 100 möguleikum í mælingunni. Í fyrsta sæti í flokki banka er Íslandsbanki og í flokki tryggingafélaga er Tryggingamiðstöðin með hæstu einkunnina. Meira »
Royal Bank of Scotland (RBS)

Afleit afkoma RBS

15:32 Tap breska bankans Royal Bank of Scotland nam 1,99 milljörðum punda, 389,40 milljörðum króna, á síðasta ári.   Meira »

Hlutabréf lækka en evran hækkar

Frá kauphöllinni í Frankfurt í dag
15:30 Hlutabréfavísitölur í Evrópu og Bandaríkjunum hafa lækkað í dag en evran hefur styrkst gagnvart Bandaríkjadal.   Meira »

Norska krónan styrkist enn

Norskar krónur.
15:07 Norska krónan hefur verið að styrkjast síðustu misseri og hefur ekki verið sterkari gagnvart evru í níu ár.  Meira »

Ný efnahagslægð á leiðinni

Olli Rehn.
14:59 Skuldakreppan á evru-svæðinu mun draga svæðið niður í nýja efnahagslægð í ár, líkt og lengi hefur verið spáð. Flest nágrannaríkin, sem ekki eru með evruna, munu fara sömu leið, samkvæmt nýrri spá Evrópusambandsins. Meira »

Marel greiðir 6,9 milljónir evra í arð

Marel
14:36 Stjórn Marels leggur til að greiddur verði út arður til hluthafa vegna reikningsársins 2011 sem nemur 0,95 evru sentum á hlut, en slík arðgreiðsla samsvarar u.þ.b. 20% af hagnaði ársins. Fyrirhuguð heildararðgreiðsla nemur um 6,9 milljónum evra, 1.144 milljónir króna. Meira »

Vinnumarkaður að rétta úr kútnum

Atvinnuleysi fer minnkandi í Bandaríkjunum
15:25 Litlar breytingar urðu á nýjum umsóknum um atvinnuleysisbótum í Bandaríkjunum í síðustu viku og bendir allt til þess að vinnumarkaðurinn sé hægt og bítandi að rétta úr kútnum þar í landi. Meira »

Rammagerðin opnar verslun á Akureyri

Lovísa Óladóttir framkvæmdastjóri og Halla Sigbjörnsdóttir verslunarstjóri.
15:03 Gjafavöruverslunin Rammagerðin opnaði í dag, 23. febrúar, nýja verslun á Akureyri. Verslunin er í endurgerðu húsi, Hamborg, að Hafnarstræti 94 á Akureyri. Meira »

Færir Advania forystu?

Ekki spurning um hvort heldur hvenær

Seðlabanki Íslands
14:40 Greiningardeild Arion banka telur að stutt sé í næstu vaxtahækkun Seðlabanka Íslands en í fundargerð peningastefnunefndar frá síðustu vaxtaákvörðun þann 8. febrúar kemur fram að tveir af fimm nefndarmönnum töldu að hækka ætti vexti. Meira »

Óbreytt mat hjá Moody's

Stjórnarráð Íslands.
14:23 Matsfyrirtækið Moody's hefur birt álit á lánshæfi íslenska ríkisins. Lánshæfiseinkunnir ríkissjóðs eru óbreyttar, Baa3 fyrir langtímaskuldbindingar og P-3 fyrir skammtímaskuldbindingar. Horfur eru áfram neikvæðar. Meira »

Íslenskir lífeyrissjóðir með verstu ávöxtun innan OECD

11:05 Ávöxtun íslenskra lífeyrissjóða var umtalsvert verri á árunum 2008-2010 en annarra lífeyrissjóða í OECD. Á þessu árabili skiluðu íslenskir lífeyrissjóðir 8,4% neikvæðri ávöxtun, en lífeyrissjóðir í OECD skiluðu að meðaltali 1,4% neikvæðri ávöxtun. Meira »

Afkoma Landsnets versnar milli ára

14:32 Hagnaður Landsnets hf. samkvæmt rekstrarreikningi nam 840 milljónum króna árið 2011 samanborið 3.563 milljón króna hagnað á árinu 2010. Meira »

DataMarket á Bandaríkjamarkað

Hjálmar Gíslason: „ Við stefnum á rétt tæplega 180 milljónir króna í tekjur á þessu ...
11:31 Gagnavinnslufyrirtækið DataMarket hefur undanfarið einbeitt sér að Bandaríkjamarkaði og hefur nú lokið mikilvægum samningum þar og náð í öfluga samstarfsaðila. Meira »

SFO bað Tchenguiz afsökunar

Vincent Tchenguiz.
09:42 Breska efnahagsbrotadeildin, Serious Fraud Office (SFO), hefur sent formlegt bréf til breska kaupsýslumannsins Vincent Tchenguiz, þar beðist er afsökunar á mistökum sem gerð hafi verið þegar hann var handtekinn í mars í fyrra í tengslum við rannsókn á Kaupþingi. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir