Reynt að teikna upp framtíð fyrir sparisjóði

Steingrímur J. Sigfússon.
Steingrímur J. Sigfússon.

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, segir að áfram verði reynt  að teikna upp framtíð fyrir sparisjóðakerfið, þótt þannig hafi farið að Spkef sparisjóður verði nú sameinaður Landsbanka. Spkef var langstærsti sparisjóðuri landsins.

Steingrímur sagði í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni, að Bankasýslan muni nú hraða  vinnu varðandi uppbyggingu sparisjóðakerfisins í ljósi þess sem gerðist um helgina þegar skrifað var undir samning um  yfirtöku og samruna Landsbankans við Spkef sparisjóð. 

Steingrímur sagði, að þegar Sparisjóðurinn í Keflavík og Byr féllu hefði verið stofnaður ný sparisjóður í Keflavík, Spkef. Hafi hugsunin verið sú að sá sparisjóður yrði kjölfestan í sparisjóðafjölskyldunni sem eftir stóð. 

Sú leið hefði hins vegar siglt í strand þegar í ljós kom hve staða Sparisjóðsins í Keflavík var slæm. Hún hefði orðið of dýr fyrir ríkið og efasemdir voru um að nýi sjóðurinn réði við það hlutverk sem honum var ætlað en  lausafjárvandinn hafi verið orðinn orðinn mjög knýjandi. 

Steingrímur sagðist hafa gert ríkisstjórninni grein fyrir því 1. mars að óumflýjanlegt væri að breyta um stefnu og færa yrði sjóðinn inn í aðra fjármálastofnun.

„Síðan gerðust hlutirnir hratt og eftir að opinber umræða fór í gang um þetta eftir afar óheppilegan fréttaleka um miðjan dag á föstudag, var ekkert annað að gera en að ganga í að klára málið," sagði Steingrímur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK