Verðbólgan nú 2,8%

mbl.is/Heiðar

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í apríl  hækkaði um 0,78% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis  hækkaði um 0,65% frá mars. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,8% og vísitalan án húsnæðis um 2,7%.  

Hagstofan segir, að verð á bensíni og olíum hafi hækkað um 3,2% (vísitöluáhrif 0,19%) og flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 16% (0,16%). Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 1,4% (0,17%), aðallega vegna hærra markaðsverðs.

Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,9% sem jafngildir 12,3% verðbólgu á ári 

Vísitalan er nú birt á nýjum grunni, mars 2011 sem byggist á niðurstöðum úr útgjaldarannsókn Hagstofunnar árin 2007-2009. Auk hennar hefur Hagstofan notað ýmsar nýrri heimildir við vinnslu grunnsins. Má þar nefna tölur um nýskráningar bifreiða og gögn um veltu á smásölumarkaði. I

nnbyrðis vægi dagvöruverslana hefur verið endurskoðað. Þá hefur tillit verið tekið til breytts innkaupamynsturs árið 2010 og eru áhrif þeirrar breytingar 0,04% til lækkunar á vísitölunni. 

Vefur Hagstofunnar

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK