Skúffufyrirtæki Landsbankans

Landsbankinn í Lúxemborg.
Landsbankinn í Lúxemborg. mbl.is/Ólafur

Huldufélagið Pace Associates í Panama var skúffufélag sem Landsbankinn í Lúxemborg útbjó þegar hann var kominn út fyrir heimildir sínar til að lána beint til fasteignasjóðs á Indlandi. Baugur, Hannes Smárason og Kevin Stanford voru meðal hluthafa í sjóðnum.  Þetta kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2.

Hinn 24. apríl 2007 lánaði Fons félaginu Pace Associates þrjá milljarða króna og voru peningarnir millifærðir inn á reikning Pace hjá Landsbankanum í Lúxemborg, samkvæmt millifærslukvittun í bókhaldi Fons. Lánið átti að greiða til baka í apríl 2010 en engin greiðsla barst.

Óskar Sigurðsson, skiptastjóri Fons, hefur nú í á annað ár verið að reyna að komast að því hvað varð um peningana, en Pálmi Haraldsson, sem var aðaleigandi Fons, gaf þær skýringar í skýrslutöku hjá skiptastjóranum að Pace hafi fjárfest í fasteignaverkefnum á Indlandi og millifærslan inn á reikning Pace hafi verið lánveiting til þessa sama verkefnis.

Pálmi Haraldsson sagði við fréttastofu að Hannes Smárason og Landsbankinn í Lúxemborg hefðu kynnt verkefnið fyrir sér á sínum tíma. Pálmi gat ekki svarað því um hvaða fasteignaverkefni hefði verið að ræða og hvar á Indlandi félagið hefði fjárfest.

Eins og komið hefur fram er millifærslan frá Fons til Pace nú til rannsóknar, en Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, staðfesti við fréttastofu að þriggja milljarða króna lánveiting frá Fons til Pace Associates væri til rannsóknar hjá embættinu en vildi ekki tjá sig að öðru leyti um málið. Stöð 2 hefur hins vegar heimildir fyrir því að meðal gagna sem embættið hafi undir undir höndum séu skjöl sem tengi Hannes Smárason við félagið Pace Associates.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK