Verðbólgan nú 5%

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í ágúst hækkaði um 0,26% frá fyrra mánuði og hefur hækkað um 5% undanfarna 12 mánuði, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.  Er þetta heldur minni hækkun milli mánaða en greiningardeildir banka höfðu spáð en 12 mánaða verðbólga nú er sú sama og í júlí.

Síðustu þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 0,9% sem jafngildir 3,5% verðbólgu á ári.

Vísitalan án húsnæðis hækkaði meira í ágúst eða um 0,36% og hefur hækkað um 4,7% síðustu 12 mánuði.

Hagstofan segir, að sumarútsölur séu víða um garð gengnar og hækkaði verð á fötum og skóm um 5,5%. Verð á mat og drykkjarvöru hækkaði um 0,8% en verð á bensíni og olíum lækkaði um 1,7%.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK