Reiðubúin að samþykkja stækkun

Leiðtogar tveggja stærstu hagkerfa Evrópu: Angela Merkel, kanslari Þýskalands og …
Leiðtogar tveggja stærstu hagkerfa Evrópu: Angela Merkel, kanslari Þýskalands og Nicolas Sarkozy forseti Frakklands. Reuters

Frakkar og Þjóðverjar eru reiðubúnir til þess að samþykkja stækkun björgunarsjóðs evru-svæðisins í tvö þúsund milljarða evra en sjóðurinn er nú 440 milljarðar evra. Þetta kom fram á vef breska dagblaðsins Guardian í gærkvöldi og hafði fréttin þegar mikil áhrif á markaði.

Fréttin kemur í kjölfar tilkynningar um að Moody's íhugi að lækka lánshæfiseinkunn Frakklands en í gærkvöldi var lánshæfiseinkunn spænska ríkisins lækkuð.

Samkvæmt frétt Guardian vonast leiðtogar Frakklands og Þýskalands til þess að þetta geti róað markaði en vandi evru-svæðisins verður meðal annars ræddur á fundi G20 ríkjanna í Cannes í næsta mánuði.

Sjá Guardian

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK