13,33% í Högum seld á 2,8 milljarða

mbl.is/Heiðar Kristjánsson

Eignabjarg, dótturfélag Arion banka, seldi 13,33% hlut í Högum til fjárfesta í lokuðu útboði sem lauk síðdegis í gær.

Í útboðinu seldi Eignabjarg 162.253.609 hluti eða 13,33% af útgefnu hlutafé í Högum hf. til fjárfesta. Heildarsöluandvirði útboðsins nemur tæpum 2,8 milljörðum króna.

Hæsta gengi á tilboðum fjárfesta sem samþykkt voru án skerðingar nam 17,20 kr. á hlut en lægsta gengi á tilboðum fjárfesta sem samþykkt voru án skerðingar nam 17,05 kr. á hlut.

Tilboð fyrir 7,9 milljarða

Tilboð fjárfesta á genginu 17,00 kr. á hlut voru skert um 50% en lægri tilboðum var hafnað. Í útboðinu bárust gild tilboð um kaup frá fjárfestum fyrir alls um 7,9 milljarða króna.

Eftir söluna er eignarhlutur Eignabjargs kominn niður í 5,98% af útgefnu hlutafé í Högum, en ákvörðun seljanda um endanlega stærð útboðs tók mið af þeim tilboðum sem bárust. Eins og fram kom í tilkynningu hafði Fjármálaeftirlitið staðfest að það gerði ekki athugasemd við að Eignabjarg héldi eftir upp að 10% eignarhlut eftir söluna, samkvæmt tilkynningu frá Arion banka.

Almennu hlutafjárútboði í Haga hf. lauk desember er Eignabjarg seldi 30% af útgefnum hlut í Högum. Útboðsgengið í hlutafjárútboðinu var 13,5 krónur á hlut en lokaverð Haga í Kauphöllinni í gær var 17,1.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK