Eimskip undirbýr skráningu

Eimskip.
Eimskip. mbl.is

Eimskip hefur ráðið Íslandsbanka og Straum fjárfestingabanka til að vinna að undirbúningi að skráningu félagsins á NASDAQ OMX Iceland. Þetta var ákveðið á stjórnarfundi í dag. Í tengslum við fyrirhugaða skráningu er gert ráð fyrir að fram fari almennt hlutafjárútboð þar sem fjárfestum og almenningi gefst kostur á að skrá sig fyrir hlutum í félaginu.

Stefnt er að því að hlutabréf félagsins verði tekin til viðskipta á NASDAQ OMX Iceland á síðasta ársfjórðungi 2012. Í tilkynningu segist Gylfi Sigfússon, forstjóri Eimskipafélags Íslands, telja að skráning Eimskips á markað verði farsælt skref fyrir félagið og núverandi hluthafa þess og góður kostur fyrir fjárfesta.

Eimskipafélag Íslands var stofnað hinn 17. janúar 1914 og er elsta skipafélag á Íslandi. Stofnhluthafar voru um 14 þúsund sem samsvaraði um 15% þjóðarinnar á þeim tíma. Félagið hefur frá upphafi lagt höfuðáherslu á flutninga til og frá landinu, en í dag býður Eimskip upp á alhliða flutningsþjónustu um allan heim.

Eimskip er með eigin starfsemi í 17 löndum og er með 17 skip í rekstri. Félagið hefur á að skipa 1.300 starfsmönnum, þar af 740 á Íslandi. Stefna félagsins er að veita öfluga flutningaþjónustu á heimamarkaði á Norður-Atlantshafi ásamt því að bjóða víðtæka alþjóðlega frystiflutningsmiðlun um heim allan

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK