Viðskipti
| mbl
| 7.6.2012
| 17:43
| Uppfært
18:50
Lækkar lánshæfismat Spánar
Fitch lækkaði í dag lánshæfismat Spánar. Ástæðan er fyrst og fremst aukinn lántökukostnaður landsins, stækkandi skuldabaggi og samdráttur í efnahagslífi.
Lánshæfiseinkunn Spánar var A en hefur nú verið lækkuð niður í BBB með neikvæðum horfum.
Fitch telur að kostnaður við að endurfjármagna spænska banka geti orðið um 60 milljarðar evra, en kostnaðurinn geti orðið allt að 100 milljarðar evra fari allt á versta veg. Þetta er meira en helmingi hærri upphæð en áður var nefnd.
Skuldir Spánar eru ekki eins miklar og Grikklands og Ítalíu, en mikill halli er á ríkissjóði og skuldir hafa hækkað hratt síðustu misseri. Fitch telur líklegt að skuldir Spánar nái hámarki árið 2015 og nemi þá 95% af vergri landsframleiðslu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
Erlendar viðskiptafréttir
Forbes
19:40
P.M. Kitco Roundup: Gold Backs Off A Bit Following FOMC Statement, Bernanke Press Conference
Guardian
19:20
The libertarian iCapitalists wouldn't have anything to do with the state … would they? | David Priestland






