Alu1 gerir milljarðs samning við Norðurál

Norðurál á Grundartanga hefur undirritað samning við íslenska verkfræðifyrirtækið Alu1 um heildarlausn á sérhæfðum framleiðslubúnaði fyrir skautsmiðju álversins. Verkið var boðið út á fjölþjóðlegum vettvangi og varð Alu1 hlutskarpast í þeirri samkeppni.

Sú þjónusta sem Alu1 selur Norðuráli felur m.a. í sér hönnun og smíði á vélasamstæðum með tilheyrandi fylgihlutum ásamt stjórntölvu. Heildarlausnin og aðalhluti vélbúnaðarins eru hönnuð af sérfræðingum íslenska fyrirtækisins.

Vélarnar sjálfar koma ýmist frá erlendum aðilum eða eru sérframleiddar en stefnt er að því að sem mest af þeim verði framleitt á Íslandi. Upphæð samningsins er hátt í milljarð króna fyrir utan virðisaukaskatt, að því er fram kemur í tilkynningu.

Verkið tekur 28 mánuði

Eyvindur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Alu1, segir í tilkynningu:„Þetta verkefni á Grundartanga er metnaðarfullt og hefur mikla þýðingu fyrir okkur. Ferlið hefur verið langt og strangt enda gerir Norðurál gríðarlegar kröfur til þátta á borð við öryggi, umhverfi og áreiðanleika. Eftir að útboðinu lauk tók við ítarlegt skoðunarferli þar sem farið var yfir tækilegar lausnir, þær bornar saman og metnar á faglegum forsendum. Framundan er vinna við frekari hönnun, samsetningu, forritun og prófanir en segja má að vélarnar séu klæðskerasniðnar að þörfum Norðuráls. Við gerum ráð fyrir að verkið verði unnið í áföngum á næstu 28 mánuðum.“

Verkfræðifyrirtækið Alu1 hefur á undanförnum árum haslað sér völl á alþjóðlegum mörkuðum með hugviti sínu og sérsniðnum lausnum fyrir álver og járnblendiverksmiðjur. Hefur fyrirtækið m.a. selt lausnir sínar til fyrirtækja í Evrópu, Egyptalandi, Kanada, Argentínu, Ástralíu og Nýju-Kaledóníu auk Íslands. Sérþekking fyrirtækisins og aukið bolmagn til að sinna stórum fyrirtækjum af þessum toga á rætur sínar að rekja til uppbyggingar stóriðju hér á landi, tengdra orkuframkvæmda og þeirra tækifæra til nýsköpunar sem fylgt hafa í kjölfarið, samkvæmt tilkynningu.

Enn eitt dæmið um samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja

Ragnar Guðmundsson, forstjóri Norðuráls, segir í tilkynningu: „Það er einkar ánægjulegt að íslenskt fyrirtæki varð hlutskarpast í þessu útboði og bar sigurorð af erlendum keppinautum á faglegum og fjárhagslegum forsendum. Þetta er enn eitt dæmið um samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja sem þjóna áliðnaðinum og þá miklu verðmætasköpun sem þau standa fyrir. Nýi búnaðurinn gerir okkur kleift að bæta vinnuumhverfið, auka afköst og nýta enn betur það efni sem til fellur í álverinu og unnt er að endurvinna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK