„Víkingarnir“ aftur á kreik með aðstoð Walkers

Jóhannes Jónsson, kaupmaður, opnaði Iceland-verslun sína í gær.
Jóhannes Jónsson, kaupmaður, opnaði Iceland-verslun sína í gær. mbl.is/Árni Sæberg

Dálkahöfundur sunnudagsblaðsins Observer skrifar um opnun verslunarinnar Iceland á Íslandi. Hann segir Malcolm Walker, eiganda Iceland, ekki hafa gleymt sínum gömlu viðskiptafélögum.

Simon Goodley rekur tengsl feðganna Jóhannesar Jónssonar og Jóns Ásgeirs Jónssonar við matvörukeðjuna Iceland í grein sinni og segir íslenska viðskiptavíkinginn Jón Ásgeir nú aftur leita í ræturnar með hjálp stofnanda Iceland, Malcolms Walkers.

Walker, sem endurheimti Iceland fyrr á árinu, hafi ekki gleymt sínum gömlu félögum, og að Jóhannes Jónsson hafi stoltur opnað fyrstu Iceland-verslunina á Íslandi um helgina.

Goodley fer yfir viðskiptasögu feðganna, hvernig þeir stofnuðu lágvöruverðsverslunina Bónus á níunda áratugnum og hófu svo að byggja upp viðskiptaveldi sitt, undir nafni Baugs. Jón Ásgeir hafi svo leitað samstarfsaðila til að kaupa Iceland-keðjuna og að Walker, sem á þeim tíma var ekki lengur eigandi hennar, hafi verið augljós kostur.

Þá skrifar Goodley að bankahrunið hafi þurrkað viðskiptaveldið Baug út og að Walker hafi í kjölfarið náð yfirráðum í Iceland.

Nú hafi greiðinn verið launaður og „án efa nýtur Jóhannes Jónsson þess að vera kominn í beina samkeppni við sína gömlu verslun, Bónus,“ skrifar Goodley.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK