Samið um borun á Reykjanesi

HS Orka
HS Orka mbl.is/Brynjar Gauti

Samið hefur verið um að Jarðboranir bori tvær holur á Reykjanesi með möguleika á borun þeirrar þriðju fyrir HS Orku ásamt viðgerð á einni holu. Forstjórar fyrirtækjanna, Júlíus Jónsson og Ágúst Torfi Hauksson undirrituðu nýverið samning þar að lútandi.

Samningurinn var gerður að undangenginni verðkönnun á verkefninu hjá Jarðborunum hf. og Borfélagi Íslands en tilboð beggja aðila voru mjög hagstæð fyrir HS Orku, samkvæmt tilkynningu til kauphallarinnar.

„ Borun þessara holna er til að tryggja núverandi rekstur orkuversins með nauðsynlegu varaafli og um leið til að leggja drög að orkuöflun fyrir stækkun orkuversins.

Jarðboranir munu flytja til landsins frá Danmörku Bentec bor sinn sem er stærsti bor sem hér hefur borað með 350 tonna lyftigetu.

Borinn er að því leyti sérstakur að hann verður knúinn með raforku frá orkuverinu í stað hefðbundinna dísilvéla. Borin mun koma til landsins eftir u.þ.b. mánuð en reiknað er með að borverkið hefjist um miðjan nóvember,“ segir í tilkynningu til kauphallarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK