Verðlag hækkar mikið milli mánaða

Verð á fatnaði og skóm hækkaði um 10,3% á milli …
Verð á fatnaði og skóm hækkaði um 10,3% á milli mánaða mbl.is/Eggert Jóhannesson

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í febrúar hækkaði um 1,64% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hækkaði um 2,03% frá janúar.

Vetrarútsölum er víða að ljúka og hækkaði verð á fötum og skóm um 10,3% (vísitöluáhrif 0,55%). Verð á bensíni og dísilolíu hækkaði um 5,3% (0,31%), verð á dagvörum hækkaði um 0,9% (0,15%) og verð á nýjum bílum hækkaði um 2,1% (0,12%).

Verðbólguhraðinn mikill síðustu þrjá mánuði

Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 4,8% og vísitalan án húsnæðis um 5,6%. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 2,0% sem jafngildir 8,1% verðbólgu á ári (9,1% verðbólgu á ári fyrir vísitöluna án húsnæðis).

Verðbólgan mæld á tólf mánaða tímabili var 4,2% í janúar og hefur ekki verið hærri en nú síðan í júní í fyrra er hún var 5,4%.

Síðustu tólf mánuði hefur innlend vara og grænmeti hækkað um 5,8% og innfluttar vörur hafa alls hækkað um 5% á síðustu tólf mánuðum. Á sama tímabili hefur dagvara hækkað um 5,8%.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK