Launahækkunin 0,8%

stækka

mbl.is/Þorkell Þorkelsson

Regluleg laun voru að meðaltali 0,8% hærri á fjórða ársfjórðungi 2012 en í ársfjórðungnum á undan. Frá fyrra ári hækkuðu laun um 4,8% að meðaltali, hækkunin var 5,1% á almennum vinnumarkaði og 4,0% hjá opinberum starfsmönnum.

Frá fyrri ársfjórðungi mældist hækkun reglulegra launa mest í fjármálaþjónustu, lífeyrissjóðum og vátryggingum eða um 1,3%. Á sama tímabili hækkuðu laun um 0,8% í byggingarstarfsemi. Frá fyrra ári hækkuðu laun einnig mest í fjármálaþjónustu (9,0%) og minnst í verslun og ýmissi viðgerðarþjónustu (4,1%).

Þá hækkuðu laun þjónustu-, sölu- og afgreiðslufólks mest frá fyrri ársfjórðungi eða um 1,6% en laun stjórnenda hækkuðu að meðaltali um 0,5% á sama tímabili. Laun sérfræðinga hækkuðu mest frá fyrra ári eða um 7,3% en laun verkafólks hækkuðu minnst, um 3,1%, samkvæmt frétt á vef Hagstofu Íslands.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
Svæði
mbl sjónvarp
Vöxturinn nægir ekki

Vöxturinn nægir ekki myndskeið

21.5. Væntingarnar eru ekkert rosalega miklar og við virðumst svolítið vera að hjakka í sama farinu, hóflegur vöxtur, en hann dugar ekki til að koma atvinnustiginu á flug og búa til innistæðuna sem þarf að vera fyrir næstu kjarasamninga. Þetta segir Bjarni Már Gylfason, hagfræðingur Samtaka iðnaðarins. Meira »
Fleiri myndskeið

Myntbreyta

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Gagnaveitur

Erlendar viðskiptafréttir