Fyrsti 3D prentarinn í almenna sölu

Maplin K8200 þrívíddarprentarinn, kostar um 700 sterlingspund frá framleiðanda.
Maplin K8200 þrívíddarprentarinn, kostar um 700 sterlingspund frá framleiðanda.

Fyrsti þrívíddarprentarinn fyrir almennan markað er kominn í sölu, en hægt er að prenta allt frá símahulstrum yfir í skó eða skartgripi. Prentarinn, sem kallast Maplin K8200, kostar um 700 sterlingspund, eða sem nemur 132 þúsund krónum og er hann nú þegar uppseldur í vefverslun framleiðandans. Allavega 30 daga bið er eftir næstu sendingu.

Í frétt Guardian er sagt að með slíkum prentara taki um 30 mínútur að prenta út símahulstur, meðan prentun á flóknum skartgripum geti tekið allt að nokkrum klukkustundum.

Sala á prenturum sem þessum er þó ekki laus við alla gagnrýni, því nýlega náði nemandi einn í Bandaríkjunum að hanna og prenta út skammbyssu sem virkaði. Hann setti seinna uppskriftina á netið og var hún öllum aðgengileg.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK