Verðbólgan 3,8%

mbl.is/Styrmir Kári

Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júlí lækkaði um 0,27% frá fyrra mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis lækkaði um 0,61% frá júní, samkvæmt frétt Hagstofu Íslands. Þetta þýðir að verðbólgan mæld á tólf mánaða tímabili fer úr 3,3% í 3,8%.

Sumarútsölur hafa áhrif á verðlag

Sumarútsölur eru víða í gangi og lækkaði verð á fötum og skóm um 10,5% (vísitöluáhrif -0,54%). Kostnaður vegna eigin húsnæðis jókst um 1,3% (0,17%). Verð á bensíni og olíum hækkaði um 2,0% (0,11%).

Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 0,2% sem jafngildir 0,9% verðbólgu á ári (-0,8% fyrir vísitöluna án húsnæðis).

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK