3,6 milljarða skuldabréf án ríkisábyrgðar

Höfuðstöðvar Landsvirkjunar við Háaleitisbraut.
Höfuðstöðvar Landsvirkjunar við Háaleitisbraut. Ómar Óskarsson

Landsvirkjun undirritaði í dag samning um sölu á skuldabréfi til tíu ára að fjárhæð 30 milljónir Bandaríkjadollara eða að jafnvirði um 3,6 milljarðar króna. Skuldabréfið var gefið út undir nýjum EMTN (e. Euro Medium Term Note) rammasamningi fyrirtækisins um alþjóðlegar skuldabréfaútgáfur, án ríkisábyrgðar, sem undirritaður var þann 26. júlí. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Rafnar Lárusson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs segir að áhugi hafi verið fyrir slíku bréfi. „Landsvirkjun hefur verið með til skoðunar, útgáfu skuldabréfa, án ríkisábyrgðar. Við höfum orðið vör við áhuga fjárfesta og því var ákveðið að ráðast í gerð nýs rammasamnings og í kjölfarið samning um sölu fyrsta skuldabréfsins án ríkisábyrgðar“.

Skuldabréfið er með 4,45% föstum vöxtum. Vextir greiðast tvisvar sinni á ári en höfuðstóllinn greiðist í einu lagi í lok lánstímans. Umsjónaraðili var Arion banki hf.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK