Framkvæmdir við gasskiljustöðvar á Hellisheiði að hefjast

Tilraunarstöðin sem komið var upp í árið 2011.
Tilraunarstöðin sem komið var upp í árið 2011.

Nú er að hefjast bygging gasskiljustöðvar við Hellisheiðarvirkjun með það hlutverk að hreinsa brennisteinsvetni úr útblæstri virkjunarinnar. Það er fyrirtækjahópur undir forystu Héðins hf. sem vinnur verkið og á smíðinni að ljúka í mars 2014. Verkið kostar rúmar 290 milljónir króna.

Vandamál í rúma tvo áratugi

Útblástur frá jarðgufuvirkjunum hefur verið nokkuð í umræðunni frá því að Nesjavallavirkjun var tekin í notkun árið 1990 og svo þegar Hellisheiðavirkjun var gangsett árið 2006. Þá fór að bera meira á hveralykt á höfuðborgarsvæðinu og leitað var leiða til að hreinsa útblásturinn á markvissari hátt.

Meðal annars kom upp hugmynd um að hreinsa brennisteinsvetnið frá jarðgufunni og dæla því aftur niður í berggrunninn með vinnsluvatni virkjunarinnar. Smíðuð var tilraunastöð og var fyrsta niðurdælingin síðla árs 2011.

Í tilkynningu frá Orkuveitunni segir að sú tilraunastöð hafi gengið nægilega vel til þess að ákveðið var að smíða stærri gasskiljustöð, sem annað gæti útblæstri frá einum af sex háþrýstihverflum virkjunarinnar. Það er sú stöð sem nú fer í byggingu. Smíðin var boðin út snemmsumars og átti fyrirtækjahópur undir forystu Héðins hf. hagstæðasta boðið. Gengið hefur verið frá samningum og verður ræsfundur verkkaupa og verkataka á mánudag.

Mikilvægasta umhverfisverkefnið

Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitunnar, segir í tilkynningunni að brennisteinsvandinn sé mikilvægasta umhverfisverkefni Orkuveitunnar nú um stundir. Hann segir smíði þessarar stöðvar vera mikilvægt skref til lausnar. Einnig séu að spretta upp viðskiptatækifæri tengd jarðhitagösunum, en ábyrgðin á lausn vandans hvíli auðvitað á Orkuveitunni.

Það verk sem nú hefur verið samið um lýtur að smíði, uppsetningu og fullnaðarfrágangi á gasskiljustöð fyrir Hellisheiðarvirkjun sem staðsett verður á lóð virkjunarinnar á Hellisheiði. Gasskiljustöðin er 12x8 metrar að flatarmáli, stálgrindarhús á steyptu gólfi auk um 13 metra hás þvottaturns við stöðina. Verktakinn sér um alla lagna- og jarðvinnu, stálsmíði og uppsetningu vélbúnaðar, sem og allar raflagnir. Þá felast í verkinu endurbætur á viðeigandi búnaði við aflvélar Hellisheiðarvirkjunar.

Uppdráttur af gasskiljustöðinni.
Uppdráttur af gasskiljustöðinni.
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK