Nýskráningar miklu fleiri en gjaldþrot

mbl.is

Alls voru 139 einkahlutafélög nýskráð í ágúst en einungis tíu voru tekin til gjaldþrotaskipta. Fyrstu 8 mánuði ársins var fjöldi gjaldþrota 592 en á sama tíma var fjöldi nýskráninga 1.308. Þetta kemur fram í frétt Hagstofu Íslands.

Í ágústmánuði voru nýskráð 139 einkahlutafélög, flest í fjármála- og vátryggingastarfsemi. Til samanburðar voru 122 nýskráningar í ágúst 2012. Fyrstu átta mánuði ársins var fjöldi nýskráninga 1.308, en það er 10,8% aukning frá sama tíma í fyrra þegar 1.180 fyrirtæki voru skráð.

Þá voru 10 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í ágústmánuði. Fyrstu 8 mánuði ársins var fjöldi gjaldþrota 592, en það er rúmlega 11% fækkun frá sama tímabili í fyrra þegar 662 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta. Flest gjaldþrot það sem af er árinu voru í heild- og smásöluverslun og viðgerðum á vélknúnum ökutækjum, samtals 119.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK