Afgangur vöruskipta rakinn til sjávarafurða

Útflutningur sjávarafurða var 27,5 milljarðar í september.
Útflutningur sjávarafurða var 27,5 milljarðar í september. mbl.is/Sigurður Bogi

Myndarlegur afgangur var af vöruskiptum við útlönd í september síðastliðnum, og var afgangurinn talsvert meiri en hann hefur að jafnaði verið í mánuði hverjum á árinu. Samkvæmt nýbirtum bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands nam vöruútflutningur 55,5 milljörðum í september en vöruinnflutningur nam 46,7 milljörðum. Afgangurinn var því 8,8 milljarðar, sem er talsvert yfir þeim 3,9 milljarða afgangi sem að meðaltali var í hverjum mánuði á fyrstu 8 mánuðum ársins. Þetta kemur fram í greiningu Íslandsbanka.

Segir þar að hagstæð þróun vöruskipta nú í september skrifast alfarið á vöruútflutning sem var sá mesti í krónum talið síðan í janúar síðastliðnum. Vöruútflutningur í september er svipaður og hann var á sama tíma í fyrra, en sé litið fram hjá óreglulegum liðum á borð við skip og flugvélar var hann töluvert meiri nú, eða sem nemur um 12% reiknað á föstu gengi.

Mestu munar um útflutning sjávarafurða

Mestu munar um útflutningsverðmæti sjávarafurða sem nam 27,5 milljarðar nú í september og hefur það ekki verið meira síðan í október í fyrra. Var útflutningsverðmæti sjávarafurða um 16% meira á föstu gengi en það var í sama mánuði í fyrra. Jafnframt munar nokkuð um útfluttar iðnaðarvörur, en það var um 8% meira nú í september en á sama tíma í fyrra reiknað á föstu gengi.

Vöruinnflutningur var jafnframt aðeins meiri í september en hann hefur að jafnaði verið á árinu, og svipaður og hann var á sama tíma í fyrra. Veruleg aukning var þó á innflutningsverðmæti mat- og drykkjarvara á milli ára, sem nam alls 5,3 milljörðum. nú september sem er 49% meira en á sama tíma í fyrra. Sé litið lengra aftur, þá hefur verðmæti mat- og drykkjavara í raun ekki verið meira en í júlí árið 2008, reiknað á föstu gengi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK