Kaupa Höfðatorg af Íslandsbanka

FAST-1 hefur keypt turninn við Höfðatorg. Seljendur eru Íslandsbanka og …
FAST-1 hefur keypt turninn við Höfðatorg. Seljendur eru Íslandsbanka og Pétur Guðmundsson, forstjóri Eykta. mbl.is/Golli

FAST-1 slhf., sem er samlagshlutafélag í stýringu hjá VÍB, undirritaði í dag kaupsamning um kaup á öllum hlutum HTO ehf, sem er eigandi að fasteignum við Höfðatorg í Reykjavík.

Í samtali við mbl.is segir Haukur Skúlason, stjórnarformaður FAST-1, að samkeppnisyfirvöld fái nú kaupin til umfjöllunar.

Kaupverðið er trúnaðarmál.

Opið söluferli á hlutafé HTO ehf. (áður Höfðatorg ehf.) hófst þann 20. júní en tilkynnt var um að tilboði Fast-1 slhf. hafi verið tekið þann 20. september síðastliðinn. Nú hefur kaupsamningurinn hins vegar verið undirritaður.

FAST-1 samlagshlutafelagið er í stýringu hjá VÍB, en helstu hluthafar eru fjölmargir lífeyrissjóðir og Tryggingamiðstöðin Félagið var stofnað árið 2012 og var þá stærð hans 6 milljarðar. Meðal eigna eru Skúlagata 21, Vegmúli 3 og Skútuvogur 1. Þá keypti dótturfélag sjóðsins, FAST-2 nýleg Klettagarða 13.

Félagið HTO ehf. átti og rak eignirnar í Höfðatorgi við Borgartún 12-14 og Katrínartún 2 í Reykjavík. Félagið var í eigu Íslandsbanka og Péturs Guðmundssonar, forstjóra Eyktar, og tengdra aðila. Íslandsbanki átti 72,5% hlutfjár en Pétur 27,5%. Heildarstærð eigna félagsins er um 57 þúsund fermetrar að meðtöldum bílakjallara, að því er segir í tilkynningu frá Íslandsbanka.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK