CCP hættir þróun á WoD og segir upp starfsfólki

CCP hefur hætt þróun á leiknum World of Darkness og …
CCP hefur hætt þróun á leiknum World of Darkness og sagt upp 56 starfsmönnum í Bandaríkjunum.

Tölvuleikjaframleiðandinn CCP tilkynnti í dag að fyrirtækið væri hætt við þróun á tölvuleiknum World of Darkness, sem hefur verið í vinnslu á skrifstofu fyrirtækisins í Atlanta í Bandaríkjunum. Í kjölfar þessarar ákvörðunar eru lögð niður 56 stöðugildi hjá CCP í Atlanta. Hluti starfsmanna sem missa stöður sínar hefur verið boðin önnur störf hjá fyrirtækinu. Í tilkynningu kemur fram að CCP veitir öllum fráfarandi starfsmönnum aðstoð við atvinnuleit.

Þeir starfsmenn CCP sem halda áfram störfum fyrir fyrirtækið í Atlanta munu vinna að þróun leikja í EVE veröldinni, sem þýðir að í fyrsta sinn frá árinu 2006 munu allir starfsmenn fyrirtækisins starfa að einni og sömu leikjaveröld.

Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri CCP, segir erfitt að hætta við verkefnið. „Ákvörðunin að hætta þróun World of Darkness er ein sú erfiðasta sem ég hef tekið. Ég hef haft trú á þeirri sýn að búa til fjölspilunar tölvuleikjaupplifun í veröld World of Darkness, og fylgst með þróunarteymi leiksins vinna af ástríðu að því markmiði síðustu ár.“

Hann segir leitt að ekki hafi náðst markmiðið að búa til leikinn, en að þessi staðreynd muni styrkja fyrirtækið við gerð EVE. „Við núverandi og fyrrverandi starfsmenn CCP og alla þá sem sýnt hafa World of Darkness áhuga, vil ég segja að mér þykir mjög leitt að við náðum ekki markmiðum okkar að færa ykkur þá upplifun sem við einsettum okkur að skapa. Okkur dreymdi um leik sem færði spilarann í ævintýraheim World of Darkness, en verðum að horfast í augu við að það verður ekki að veruleika. Ég vona að við getum einhvern tímann bætt ykkur þetta. Þrátt fyrir að þetta hafi verið erfið ákvörðun sem hefur áhrif á vini okkar og fjölskyldur, þá mun hún sameina fyrirtækið í því markmiði að þróa leiki fyrir eina og sömu leikjaveröldina sem setur okkur í sterkari stöðu til að ná árangri. Við erum nú staðráðnari en nokkru sinni fyrr að gera EVE að stærstu leikjaveröld í heimi,“ segir Hilmar.

CCP og White Wolf sameinuðust árið 2006 og var þá stefnt á að gefa út leik sem gerðist í World of Darkness veröldinni. White Wolf var annar stærsti útgefandi hlutverkaspila í heiminum og gaf einnig út skáldsögur, teiknimyndabækur, safnkortaspil og fleira þess háttar, bæði byggt á eigin hugverkum sem og verkum annarra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK