Fyrsti viðskiptadagur 25. apríl

Kauphöll Íslands hefur samþykkt umsókn HB Granda um töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar. Bréf félagsins verða tekin til viðskipta á Aðalmarkaðinum 25. apríl næstkomandi.

Í frétt á vef HB Granda segir að 9. apríl síðastliðinn hafi Kauphöllin samþykkt umsókn félagsins að uppfylltum skilyrðum um dreifingu hlutafjár. Þeim skilyrðum hefur nú verið fullnægt.

Hlutabréf HB Granda eru nú skráð á First North Iceland, en við töku til viðskipta á Aðalmarkaðnum verða hlutabréfin afskráð af þeim markaði. Verður síðasti viðskiptadagur bréfanna þar 23. apríl næstkomandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK