Hugi að öryggi rafrænna auðkenna

Öryggisgallinn gengur undir hinu myndræna nafni Heartbleed, með vísan til …
Öryggisgallinn gengur undir hinu myndræna nafni Heartbleed, með vísan til þess hve viðkvæmar upplýsingar gátu lekið vegna hans.

Í ljósi umræðu um netöryggi undanfarna daga vegna veilunnar Heartbleed vekur fjármála- og efnahagsráðuneytið athygli á mikilvægi öryggis rafrænna auðkenna.

Í frétt á vef ráðuneytisins segir að rafræn skilríki veiti hæsta öryggi sem í boði er á Íslandi, en það sé meðal annars fólgið í því að að notendanöfn og lykilorð eru hvergi geymd miðlægt.

„Í nýlegri skýrslu ráðgjafarfyrirtækisins ADMON um mat á öryggi rafrænna auðkenna eru rafræn skilríki öruggasta almenna rafræna auðkenningin sem í boði er hér á landi,“ segir í fréttinni.

Þar kemur jafnframt fram að fullgild rafræn skilríki séu gefin út undir Íslandsrót sem sé í eigu ríkisins. „Eru þjónustuveitendur hvattir til þess að vera meðvitaðir um upplýsingaöryggi og með hvaða hætti þeir telja viðunandi að varðveita og veita rafrænan aðgang að persónutengjanlegum gögnum,“ segir í fréttinni.

Fimm ár eru síðan almenn útgáfa á rafrænum skilríkjum hófst og tæp 90% Íslendinga fimmtán ára og eldri geta nýtt sér þau. Nýlega var farið að gefa skilríkin út í farsíma og fjölmargir þjónustuveitendur hafa sýnt þessari lausn aukinn áhuga.

Öryggisveilan Heartbleed, sem tilkynnt var um á dögunum, er alvarleg og snertir alla sem nota netið, að því er segir í frétt ráðuneytisins. Veiluna geti óprúttnir aðilar notað til þess að komast yfir lykilorð fólks og fá þannig aðgang að persónuupplýsingum.

„Fólk er hvatt til þess að kynna sér hvort veilan hafi verið hjá þjónustuaðilum sem það sendir persónuleg gögn. Hafi veilan verið í kerfinu er fólk hvatt til að skipta um lykilorð þegar búið er að laga veiluna,“ segir í fréttinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK