Vísir lokar á Þingeyri 1. júní

Vísir hf. ætlar að flytja alla starfsemi fyrirtækisins til Grindavíkur. …
Vísir hf. ætlar að flytja alla starfsemi fyrirtækisins til Grindavíkur. Vinnslur félagsins á Djúpavogi, Þingeyri og Húsavík verða lagðar niður. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Verkalýðsfélagi Vestfirðinga barst í morgun tilkynning frá Vísi hf. um rekstrarstöðvun fyrirtækisins vegna hráefnisskorts. Finnbogi Sveinbjörnsson, formaður VerkVest, gagnrýnir stjórnendur Vísis fyrir að vera ekki skýrir í máli um fyrirætlanir sínar. „Við fengum tilkynningu frá þeim í morgun um rekstrarstöðvun vegna hráefnisskorts eins og þeir hafa gert undanfarin ár. Í henni stendur að það verði lokað 1. júní en ekkert kemur fram hvenær verður opnað aftur eins og venjan hefur verið,“ segir Finnbogi í samtali við Bæjarins besta. Í fréttatilkynningu Vísis frá 28. mars þegar ákvörðun fyrirtækisins um að loka fiskvinnslum fyrirtækisins á Húsavík, Djúpavogi og Þingeyri var kunngjörð segir: 

„Hugmyndir stjórnenda Vísis miðast að því að flytja fiskvinnsluna frá Þingeyri til Grindavíkur eftir eitt ár. Tíminn fram að því verður notaður til að leggja grunn að annarri starfsemi í húsnæði fyrirtækisins á staðnum.“

Finnbogi kallar eftir því að stjórnendur Vísis útskýri hvað þeir eigi við þegar þeir segjast ætla að leggja grunn að annarri starfsemi í húsnæði fyrirtækisins á staðnum. 

„Samkvæmt fréttatilkynningunni ætti fiskvinnslan að vera starfrækt til 28. mars á næsta ári, en ég kalla eftir skýrum svörum frá stjórnendum Vísis hvað þeir ætla sér.“ 

Frétt Bæjarins besta

Frétt mbl.is: Meiriháttar bakslag fyrir Djúpavog

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK