Seltjarnarnesbær Stofnun ársins

Starfsmenn Fjárhags- og stjórnsýslusvið Seltjarnarnessbæjar með verðlaunagripinn og viðurkenningarskjal.
Starfsmenn Fjárhags- og stjórnsýslusvið Seltjarnarnessbæjar með verðlaunagripinn og viðurkenningarskjal.

Starfsmannafélag Reykjavíkur útnefndi í gær Seltjarnarnesbæ Stofnun ársins Borg og bær árið 2014 í flokki minni stofnanna. Viðurkenninguna hlaut Fjárhags- og stjórnsýslusvið bæjarins en í hópi stærri stofnana hlaut Fræðslusvið Seltjarnarness þriðju verðlaun. Þá hlutu bæði sviðin viðurkenningu sem Fyrirmyndarstofnun ársins 2014. Önnur svið innan bæjarins lentu líka ofarlega á listanum. 

„Þessi einstaki árangur þykir endurspegla þann kraft og metnað sem starfsfólk Seltjarnarnesbæjar býr yfir og er góð hvatning til að halda áfram á sömu braut og hlúa að því sem betur má fara. Viðurkenningarnar eru byggðar á stærstu reglulegu vinnumarkaðskönnun, sem framkvæmd er hér á landi og gefur mikilvægar upplýsingar um stöðu starfsmanna á vinnumarkaði. Í henni er leitað eftir viðhorfi félagsmanna  til vinnu sinnar og yfirmanna, líðan þeirra í starfi, starfsumhverfi, tækjabúnað og hvernig samskiptum er háttað á vinnustaðnum,“ segir í tilkynningu frá bænum.

Sextíu og tvær stofnanir komust á lista í ár. 

Þetta er í þriðja sinn sem Starfsmannafélag Reykjavíkur veitir slíka viðurkenningu, en fyrir liðlega ári síðan sameinaðist Starfsmannafélag Seltjarnarness Starfsmannafélag Reykjavíkur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK