Íslandsbanki vísar ásökunum á bug

mbl.is/Ómar

Íslandsbanki hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna viðtals sem birtist í ViðskiptaMogganum í dag þar sem fjallað er um málefni Skeljungs og Íslandsbanka. Bankinn vísar því á bug að hann hafi vísvitandi reynt að fara á svig við lög um fjármálafyrirtæki og samkeppnisreglur.

Yfirlýsingin er svohljóðandi:

„Íslandsbanki vísar á bug ásökunum sem fram koma í umfjöllun Morgunblaðsins í dag um málefni Skeljungs, þar sem gefið er í skyn að bankinn hafi vísvitandi reynt að fara á svig við lög um fjármálafyrirtæki og samkeppnisreglur. Umfjöllunin er einhliða og ekki var leitað eftir viðbrögðum Íslandsbanka við vinnslu fréttarinnar. 

Fjárhagsleg endurskipulagning fyrirtækja var eitt af megin verkefnum Íslandsbanka í kjölfar efnahagshrunsins. Í þeirri vinnu var það stefna Íslandsbanka að leysa ekki til sín eignarhluti í félögum,ef hjá því væri komist, heldur vinna að lausnum í samráði við eigendur eða selja þau í opnu söluferli.  Ein af forsendum slíks samstarfs var að traust ríkti til viðkomandi eigenda. 

Í þessu verkefni, eins og öðrum, var unnið samkvæmt innri reglum bankans sem miða að því að uppfylla samkeppnislög og önnur lög sem um starfsemi bankans gilda. Íslandsbanki hefur í slíkri vinnu einnig lagt áherslu á að halda eftirlitsaðilum vel upplýstum og var bankinn í samskiptum við Samkeppniseftirlitið vegna þessa máls og hélt því upplýstu á öllum stigum þess. 

Í umfjöllunni í Morgunblaðinu er ítrekað reynt að gera starfsmenn bankans og vinnubrögð þeirra tortryggileg með dylgjum og ósannindum í þeirra garð.  Íslandsbanki getur hinsvegar ekki, lögum samkvæmt,  tjáð sig um einstaka viðskipti né samskipti bankans við einstaka viðskiptamenn nema með samþykki þeirra.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK