Hreinsað til í banka Páfagarðs

Miklar breytingar eru í vændum í banka Páfagarðs en undanfarið hefur hópur fjármálasérfræðinga og bandarískt ráðgjafateymi unnið að endurbótum á rekstri bankans.

Jean-Baptiste de Franssu, sem áður var framkvæmdastjóri Investco Europe, er nefndur sem næsti bankastjóri í Páfagarði en hann hefur tekið þátt í umbótastarfinu sem hefur staðið yfir í tæpt ár.

Fyrir ári hét Frans páfi því að auka gegnsæi í rekstri bankans en bankinn er helst þekktur fyrir hneykslismál og laumuspil undanfarin ár.

AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK