Beittu sér gegn Múrbúðinni

Baldur Björnsson eigandi Múrbúðarinnar.
Baldur Björnsson eigandi Múrbúðarinnar. mbl.is/Ómar Óskarsson

Fyrri eigendur Húsasmiðjunnar viðurkenna að hafa brotið gegn skilyrðum sem sett voru vegna kaupa Byko, Húsasmiðjunnar og Kaupfélags Skagfirðinga á eignarhlutum í Steinullarverksmiðjunni hf. (nú Steinull hf.). Skilyrðunum var ætlað að vinna gegn því að sameiginleg eignaraðild Byko og Húsasmiðjunnar að Steinull myndi takmarka samkeppni.

Játað er að gamla Húsasmiðjan hafi brotið gegn skilyrðunum m.a. með því að hafa beitt sér gagnvart Steinull til að koma í veg fyrir að Múrbúðin fengi ákveðin viðskiptakjör og þannig haft skaðleg áhrif á samkeppnisstöðu Múrbúðarinnar á grófvörumarkaði.

Eigandi Múrbúðarinnar, Baldur Björnsson, sendi í dag til fjölmiðla tölvupóstsamskipti sín og framkvæmdastjóra Steinullarverksmiðjunnar í tengslum við samráð Húsasmiðjunnar og BYKO.

„Múrbúðinni þykir rétt að sýna fjölmiðlum og þarmeð almenningi dæmi um þá forherðingu sem Húsasmiðjan og Steinullarverksmiðjan sýndu í viðleitni sinni til að koma í veg fyrir samkeppni við sölu á steinull til einangrunar húsbygginga.
 
Í tölvupósti sem Einar Einarsson framkvæmdastjóri Steinullarverksmiðjunnar sendi framkvæmdastjóra Múrbúðarinnar þann 30. janúar 2012 segir Einar að hjá Steinullarverksmiðjunni sé aðeins einn verðlisti í gangi sem gildi fyrir alla viðskiptavini. Hann segir að að samband Steinullarverksmiðjunnar við eigendur sína (Húsasmiðjan og Byko áttu 50% í fyrirtækinu) sé nákvæmlega með þeim hætti, sem hann hafi lýsti á fundi með framkvæmdastjóra Múrbúðarinnar og að sömu afsláttakjör séu í gildi eins og  verið hafa frá úrskurði samkeppnisráðs árið 2002 (en þá setti samkeppnisráð ströng skilyrði um að Húsasmiðjan og Byko mættu ekki beita sér gegn samkeppni sem aðaleigendur Steinullarverksmiðjunnar).
 
Í frétt Samkeppniseftirlitsins frá því í gær kemur allt annað fram. Þar segir að Húsasmiðjan hafi viðurkennt að hafa brotið gegn skilyrðum samkeppnisráðs nr. 19/2002. Þau skilyrði voru sett vegna kaupa Byko, Húsasmiðjunnar og Kaupfélags Skagfirðinga á eignarhlutum í Steinullarverksmiðjunni hf. (nú Steinull hf.). Skilyrðunum var ætlað að vinna gegn því að sameiginleg eignaraðild Byko og Húsasmiðjunnar að Steinull myndi takmarka samkeppni.
 
Í frétt Samkeppniseftirlitsins segir að Húsasmiðjan hafi brotið gegn skilyrðunum m.a. með því að hafa beitt sér gagnvart Steinull til að koma í veg fyrir að Múrbúðin fengi ákveðin viðskiptakjör og þannig haft skaðleg áhrif á samkeppnisstöðu Múrbúðarinnar á grófvörumarkaði.
 
Þetta skýrir ýmislegt. Miðað við þau viðskiptakjör sem Steinullarverksmiðjan bauð hafði Múrbúðin aðeins 5% framlegð af sölu steinullar ef hún yrði seld á sama verði og í Byko og Húsasmiðjunni eins og tilboð þeirra sýndu ýtrekað. Múrbúðin hafði því ekkert svigrúm til að lækka verðið og gat þarmeð ekki beitt sér í samkeppni með þessa mikilvægu byggingavöru. Í tölvupósti til Steinullarverksmiðjunnar (sjá hér að neðan) undraðist framkvæmdastjóri Múrbúðarinnar hvernig Byko og Húsasmiðjan gætu selt steinullina með svo lágri framlegð, þ.e. ef fyrirtækin væru yfirleitt að kaupa hana inn á sömu kjörum og Múrbúðin. Framkvæmdastjóri Steinullarverksmiðjunnar sagði af og frá að þessi fyrirtæki væru með hagstæðari viðskiptakjör en Múrbúðin og verðlagning þeirra hlyti bara að vera til marks um grimma samkeppni. En nú hefur sannleikurinn semsé komið í ljós, Steinullarverksmiðjan vann með eigendum sínum að því að koma í veg fyrir að samkeppni gæti hafist í sölu á steinull hér á landi.
 
Þess má geta að í frétt Samkeppniseftirlitsins frá því í gær kom fram að til viðbótar við Húsasmiðjuna, Byko og Úlfinn hafi Steinullarverksmiðjan verið tekin til rannsóknar í þessu umfangsmikla samráðsmáli,“ segir í bréfi sem framkvæmdastjóri Múrbúðarinnar sendi til fjölmiðla í dag.
 
Tölvupóstur framkvæmdastjóra Steinullarverksmiðjunnar:

On 1/30/12 10:32 AM, "Einar Einarsson" <einar@steinull.is> wrote:

Sæll Baldur.
 
Ég tek undir með þér að kaup ykkar hafa verið undir því sem ég átti von á. Hverju um er að kenna ætla ég ekki að dæma um en ég get fullvissað þig um að samband okkar við eigendur okkar er nákvæmlega með þeim hætti,  sem ég lýsti á fundi okkar við upphaf viðskiptanna og sömu afsláttakjör eru í gildi nú eins og  verið hafa frá úrskurði samkeppnisráðs árið 2002. Við tökum skilyrði samkeppnisráðs mjög alvarlega og leitumst þess vegna við að halda nauðsynlegri „fjarlægð“ milli fyrirtækjanna.
 
Það er aðeins einn verðlisti í gangi, sem gildir fyrir alla viðskiptavini á Íslandi og vörurnar hækka að sjálfsögðu jafn mikið til allra. Ástæða þessarar hækkunar er einfaldlega sú, að okkar stærstu kostnaðarliðir hafa hækkað mjög mikið síðan síðasti verðlisti var gefinn út: Laun hafa hækkað samkvæmt kjarasamningum um ríflega 12% og rafmagn hátt í 20 % í takt við nýja verðstefnu Landsvirkjunar auk verulegra hækkana, sem stafa af veikingu krónunnar.
 
Það hafa aldrei verið greiddir út aðrir eftirágreiddir afslættir til viðskiptavina á Íslandi og engin áform uppi um slíkt. Ég hef að sjálfsögðu fylgst með umræðum í framhaldi af útgáfu skýrslu um mismunun birgja í verðum til smásöluaðila og þykir afar athyglivert að mismunun á þessum „frjálsa“ markaði virðist margföld á við það sem er samkvæmt okkar viðskiptakjörum.
 
Auðvitað verður að reka öll fyrirtæki með hagnaði og ég sé ekki hvernig Byko eða Húsasmiðjan geta selt steinull með lægri álagningu en aðrar vörur. Stundi menn undirboð og selji vörur með tapi er það væntanlega merki um grimmúðlega samkeppni, sem ekki stenst til lengdar eða hvað ? Samkeppni á byggingamarkaði mun þó væntanlega ekki minnka á næstunni með innkomu nýs aðila á markaðinn.
 
Við bjóðum að sjálfsögðu alla viðskipamenn velkomna og ég vonast til að okkar samstarf þróist á jákvæðan hátt báðum til hagsbóta.
 
Bestu kveðjur
F.h. Steinullar hf.
Einar

Tölvupóstur framkvæmdastjóra Múrbúðarinnar:

From: Baldur Björnsson [mailto:baldur@murbudin.is]
Sent: 29. janúar 2012 10:14
To: Einar Einarsson
Subject: 5% hækkun verðskrár


Steinull hf.
Einar Einarsson


Við þökkum fyrir viðskiptin og lipra þjónustu á síðasta ári. Við höfum móttekið bréf ykkar dagsett 24/1 sl varðandi 5% hækkun á verðskrá ykkar.
 
Undirritaður hefur af því nokkrar áhyggjur vegna eignarhalds á Steinull hf, að verðhækkanir séu mismiklar á söluaðila ykkar. Því spyr ég;
Hækka vörur jafnmikið til eiganda Steinullar, söluaðilanna Byko og Húsasmiðjunnar ?
Ef verð hækka jafnmikið til ofangreindra aðila og til Múrbúðarinnar, vinnið þið hækkunina niður með eftirágreiddum afsláttum til þeirra seinna, t.d. í árslok ?
Eins þú þú sérð höfum við hjá Múrbúðinni nokkrar áhyggjur af mismunum í krafti eignarhalds á Steinull hf. Þetta einnig í ljósi mikillar umræðu þessa dagana um gríðarlega mismunun á verði Íslenskra birgja til stærri smásöluaðila. Það hefur komið berlega í ljós undanfarið að við eigum ekki nokkra möguleika að bjóða ykkar vörur á móti eigendum ykkar nema í litlum sölum til smærri verktaka eða einstaklinga, nokkurs konar kropp sölur og ekkert meira.
 
Byko s
em tapaði rúmlega 400 miljónum árið 2010” og Húsasmiðjan sem sögð var hafa tapað skv fréttum um 309 miljónum fyrstu 7 mánuðum ársins 2011” hafa kannski sérstakt svigrúm til að selja ykkar vörur með lægri álagningu en við hjá Múrbúðinni teljum að rekstur okkar þurfi til að reka fyrirtækið af ábyrgð, rekstrarhallalaust.


Með von um svör við ofangreindum spurningum.


Kveðja / Best regards
Baldur Björnsson

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK