Silicor áður hætt við tvær verksmiðjur

Sólarkísilverksmiðja Silicor Materials á að reisa á svæðinu á Grundartanga …
Sólarkísilverksmiðja Silicor Materials á að reisa á svæðinu á Grundartanga sem gulu línurnar ramma inn. . Ljósmynd/Faxaflóahafnir

Fyrirtækið Silicor Materials, sem ætlar að reisa sólarkísilverksmiðju á Grundartanga, hefur áður fyrr fallið frá tveimur svipuðum áformum í Bandaríkjunum þar sem ekki náðist að fjármagna verkefnið. Þetta kemur fram í fréttaskýringu visis.is í dag, en Silicor misfórst meðal annars að leggja fram 150 þúsund dala tryggingu á vörslureikning.

Árið 2011 ætlaði Silicor að reisa sólarkísilverksmiðju í Lownedes-sýslu í Mississippi, en heildarupphæð verkefnisins var 200 milljónir dala, eða 46 milljarðar króna. Vísir segir að verkefnið hafi átt að skapa 950 störf og að framleiðslan hafi verið ráðgerð 16 þúsund tonn á ári.

Fengu opinbera aðstoð en reistu ekki verksmiðjuna

Sveitarfélagið lagði til mikla opinbera aðstoð, svo sem gatnagerð, hagstæðar lánalínur og skattahvata. Heildarverðmæti þess var um 10,7 milljarðar. Ekkert varð þó af framkvæmdunum og þegar sýslan óskaði eftir tryggingu upp á 150 þúsund dali þangað til framkvæmdir myndu hefjast kom fyrirtækið ekki með neina fjármuni. Fallið var frá áformunum nokkru seinna.

Sama ár hætti fyrirtækið við byggingu verksmiðju í Ohio af sömu ástæðum, en fyrirtækið hafði þá fengið vilyrði fyrir 275 milljón dala lánalínu frá yfirvöldum. Því var hafnað af Silicor þar sem frekar var horft til Mississippi.

77 milljarða framkvæmd hér á landi

Fyr­ir­huguð ár­leg fram­leiðslu­geta verksmiðjunnar hér á landi er um 16.000 tonn og áætlaður bygg­ing­ar­kostnaður 670 millj­ón­ir Banda­ríkja­doll­ara, tæp­lega 77 millj­arðar króna. 

Þegar tilkynnt var um verkefnið var vonast til að uppbygging gæti hafist í haust og að fullum fram­leiðslu­af­köst­um verði náð haustið 2017 eða vorið 2018. Verk­smiðjan­ myndi skapa meira en 400 störf eft­ir að starf­semi er kom­in að fullu í gang, auk þeirra starfa er skap­ast á bygg­ing­ar­tíma.

Terry Jester, forstjóri bandaríska iðnfyrirtækisins Silicor Materials, og Gísli Gíslason, …
Terry Jester, forstjóri bandaríska iðnfyrirtækisins Silicor Materials, og Gísli Gíslason, hafnarstjóri Faxaflóahafna. Ljósmynd/Faxaflóahafnir
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK